Björn frá út tímabilið og Jakob með brjósklos Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. janúar 2020 10:45 Björn hefur leikið sinn síðasta leik á þessu tímabili. vísir/vilhelm
Björn Kristjánsson leikur ekki meira með Íslandsmeisturum KR í körfubolta á þessu tímabili. Hann þarf að gangast undir aðgerð á mjöðm. Þetta kemur fram á heimasíðu KR. Björn hefur glímt við meiðsli í mjöðm í rúmt ár og fer í aðgerð á mjaðmakúlu á næstunni. Búist er við að hann verði frá í 4-5 mánuði. Björn lék aðeins þrjá leiki með KR í Domino's deild karla í vetur. Í þeim var hann með 8,0 stig, 3,0 fráköst og 2,0 stoðsendingar að meðaltali. Þá hefur Jakob Örn Sigurðarson verið greindur með brjósklos. Samkvæmt heimasíðu KR festist hann í bakinu í jólafríinu. Óvíst er hversu lengi Jakob verður frá. Jakob kom til KR frá Borås Basket í Svíþjóð fyrir tímabilið. Hann er með 12,7 stig, 2,8 fráköst og 2,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Jón Arnór Stefánsson og Kristófer Acox eru enn frá hjá KR; Jón Arnór vegna meiðsla og Kristófer vegna veikinda.KR vann þriggja stiga sigur á Grindavík, 91-94, eftir framlengingu í fyrsta leik sínum eftir áramót í gær. Króatinn Dino Cinac lék sinn fyrsta leik fyrir KR í gær. Hann skoraði tíu stig og tók sex fráköst. Eyjólfur Ásberg Halldórsson lék einnig sinn fyrsta leik fyrir KR í nokkur ár. Hann skoraði fimm stig, öll í framlengingunni.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - KR 91-94 | Framlengdur spennutryllir í Röstinni KR hafði betur í Röstinni eftir framlengdan leik. 5. janúar 2020 21:15 Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - KR 91-94 | Framlengdur spennutryllir í Röstinni KR hafði betur í Röstinni eftir framlengdan leik. 5. janúar 2020 21:15