Bólusetning við heilahimnubólgu B ekki á dagskrá Ásgeir Erlendsson skrifar 22. febrúar 2016 19:00
Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld var rætt við móður 17 mánaða stúlku sem lést úr heilahimnubólgu. Hún sagði mikilvægt að íslensk heilbrigðisyfirvöld tækju upp bólusetningu á heilahimnubólgu B líkt og bresk yfirvöld gerðu á síðasta ári. Á Íslandi eru börn bólusett gegn heilahimnubólgu, en ekki heilahimnubólgu B. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að ekki hafi verið alvarlega rétt i að hefja slíka bólusetningu hér á landi. „Það hefur ekki komið alvarlega til tals enda hefur gengið mjög erfiðlega að búa til svona bóluefni og það er bara fyrst núna í fyrra að einhver þjóð byrjaði að bólusetja öll börn við meningókokkum B og það eru Bretar“. Heilahimnubóla B er ekki algeng hér á landi en um eitt til tvö tilfelli koma upp hér á landi árlega. Þórólfur segir ýmsa þætti þurfi að koma til svo skoðað sé að hefja bólusetningu. „Þetta er alvarlegur sjúkdómur eins og við vitum og það má segja það að eitt alvarlegt tilfelli, eitt dauðsfall, sé kannski nóg. Það þarf að vega það og meta hvort þetta bóluefni passi vel við þær bakteríur sem hafa verið í gangi hér á landi. Svo þarf að tryggja fjármagn til verkefnisins.“ Lítil reynsla er komin á bóluefni við heilahimnubólgu B enda hófu Bretar að bólusetja í september. „Það er búið að reynast svolítið erfitt að búa til bóluefni gegn þessari bakteríu og hefur reynst erfiðara en gegn mörgum öðrum. Vonandi mun reynslan sýna að þetta bóluefni er gott og öruggt. Þá getur farið fram alvarleg umræða um það hvort nota eigi það hér á landi. “
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira