Laus úr fangelsi eftir fjóra áratugi í einangrun Bjarki Ármannsson skrifar 22. febrúar 2016 19:42 Woodfox (t.h.) gengur út úr fangelsinu á föstudaginn ásamt bróður sínum. Vísir/EPA
Bandaríska fanganum Albert Woodfox var fyrir helgi sleppt úr fangelsi í Louisiana-ríki þar sem hann sat inni í rúma fjóra áratugi. Woodfox, sem var í félagsskap Svörtu pardusanna svokallaðra (e. Black Panthers), var ákærður árið 1972 fyrir að myrða fangavörð. Woodfox hefur hins vegar verið sýknaður af þeirri kæru í tvígang og í fyrra var ákveðið að láta hann lausan þar sem dómari hafnaði því að hann yrði ákærður þriðja sinni fyrir sama glæp. Woodfox þurfti alls að dúsa í einangrun í fjörutíu og þrjú ár en enginn annar bandarískur fangi hefur setið svo lengi í einangrun. Alþjóðlegu samtökin Amnesty fagna því að Woodcox hafi verið látinn laus en Íslandsdeild samtakanna tók upp mál hans í Bréfamaraþoni sínu í desember síðastliðnum. „Eftir fjögurra áratuga einangrun er lausn hans löngu tímabær og sjálfsögð,” er haft eftir yfirherferðarstjóra Amnesty í Bandaríkjunum í fréttatilkynningu. „Ekkert mun í raun bæta fyrir þá grimmilegu, ómannlegu og niðurlægjandi einangrunarvist sem hann sætti af hálfu Louisiana-ríkis. Woodfox hefur varið um helming ævi sinnar í að ná fram þessu löngu tímabæra réttlæti sem hann lokst fékk á 69. afmælisdag sinn.” Woodfox er einn Angóla-þremenninganna svokölluðu sem kenndu sig við fangelsið þar sem þeir dvöldu eftir að hafa verið dæmdir í áratugalangt fangelsi fyrir vopnað rán. Hinir tveir voru látnir lausir annars vegar 2001 og hins vegar 2013. Þremenningarnir börðust fyrir því að réttindi svartra fanga innan fangelsisins yrðu virt. Þremenningarnir hafa alltaf haldið fram sakleysi sínu í báðum málum.
Mest lesið Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum Innlent Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Erlent „Það fer enginn lífvörður út í“ Innlent Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fleiri fréttir Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Sjá meira