FL Group ekki undir neinum þrýstingi 15. nóvember 2007 22:43 FL Group segist ekki undir neinum þrýstingi.
Vísir sagði frá því í dag að FL Group væri undir miklum þrýstingi að selja hlut sinn í dönsku bruggverksmiðjunni Royal Unibrew. Vísir var þar að vitna í viðskiptasíðu blaðsins Berlingske frá því í dag. Blaðið hafði eftir heimildum bæði í Reykjavík og Kaupmannahöfn að slæmt uppgjör FL Group á 3ja ársfjórðungi gerði það að verkum að félagið yrði að losa sig við 25,5% hlut sinn í Unibrew. Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group sagði hinsvegar nú í kvöld að fullyrðingar Berlingske séu fráleitar. "Við erum ekki undir neinum þrýstingi að selja eign okkar í Royal Unibrew þrátt fyrir að tímabundnar sveiflur séu nú í gengi bréfa félagsins. Þessi iðnaður hefur að undanförnu dregist saman og eigum við von á því að það sé tímabundið en samdrátturinn skýrist m.a. af reykingarbanni í Skandinavíu og veðurskilyrðum í Vestur Evrópu. Margir af okkar samkeppnisaðilum hafa nú þegar tilkynnt um væntanlega minnkandi sölu á seinni hluta ársins. Við sjáum til lengri tíma ágæt tækifæri í okkar fjárfestingu í Royal Unibrew sem er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði á Norðurlöndunum," sagði Halldór og bætti við: "Við munum áfram leitast við að vinna með stjórnendum félagsins og koma okkar sjónarmiðum á framfæri en við teljum að tækifæri séu til þess að efla rekstur Royal Unibrew og minnka kostnað eins og stjórnendur félagsins eru nú að kynna fyrir fjárfestum."
Mest lesið Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira