Það er drulluerfitt að breyta heiminum en lestu áfram Kristín Elfa Guðnadóttir skrifar 20. desember 2013 06:00 Þér er sagt að það þýði ekkert að ybba gogg. Það er ekki satt. Þú getur hætt að versla við þá sem þér líkar ekki og kjósa þá sem þú treystir ekki. Þú getur hætt að borga reikninga, búið í tjaldi, veitt þinn eigin fisk og ég skal lofa þér því að það munu margir standa með þér. Þú getur meira að segja farið í stríð við stórfyrirtæki (sem okkur er sagt að sé ekki hægt) og milljónir munu standa með þér. Það er hægt að breyta heiminum og við eigum nú þegar fólk úti um allan heim sem safnar saman og kemur á framfæri praktískum lausnum. Það er meira að segja hægt að breyta okkur þannig að okkur þyki nautakjöt ógeð. Það myndi nú aldeilis draga úr gróðurhúsaáhrifum. En við getum líka bara ákveðið hlutina sjálf og það er affarasælast. Ég hvet þig til að skrifa niður á blað það sem þér finnst skipta mestu máli. Flestir hugsa um börnin sín og fjölskylduna. Margir hugsa um ást, lýðræði, mannréttindi, jafnrétti, menntun og frið – þessi stóru og yndislegu hugtök. Og að borin sé virðing fyrir okkur, að við séum ekki áhrifalaus. Þegar við vitum hvað skiptir okkur mestu máli er næsta skref að finna leiðir. Við getum þetta. Við eigum fólk sem trúir ekki á fjórflokka, gamaldags pólitíska iðkun og hægri/vinstri, allt þetta sem við notum til að aðgreina okkur og koma í veg fyrir að við getum myndað gott samfélag. Við höfum alltaf átt svona fólk en núna höfum við til viðbótar miklu betri tæki og tól til að skipuleggja okkur, fá upplýsingar og láta í okkur heyra. Það er mikilvægt að verja netið fyrir einræði. Og líka fyrir okkur sjálfum.Tökum málin í eigin hendur Það er drulluerfitt að breyta heiminum, ég ætla ekkert að skafa utan af því. Það er ekkert að Facebook og kó í hófi en neysla einfaldrar afþreyingar er alveg jafnhættuleg og þegar Neil Postman skrifaði þá frábæru bók „Amusing Ourselves to Death“. Hún rænir okkur þeim möguleika að breyta samfélaginu. En ókei. Við erum með gott fólk, fína viðhorfsbreytingu og frábær tæki og tól. Málið er samt ekki í höfn. Við þurfum að skuldbinda okkur. Það er glæpsamlegt að leyfa LÍÚ að eiga landið. Það er fáránlegt að bankar græði milljarða á milljarða ofan á sama hátt og fyrir hrun. Það er súrrealískt að halda að til dæmis lyfjarisar eða landtökufyrirtæki beri hag okkar fyrir brjósti. Og það er einfaldlega kjánalegt að trúa því að á meðan við sinnum okkar daglegu störfum þá reddist þetta allt saman einhvern veginn. Krefjumst alltaf svara og básúnum svörin, eða skort á þeim, á netinu. Peninga og völd gefa sárafáir eftir. Við þurfum að taka málin í okkar hendur. Það er eina leiðin til að umhyggja, kærleikur, samvinna, traust og allt þetta góða sem við viljum að umljúki okkur sjálf þrífist í samfélaginu. Jörðin er að gefast upp á okkur og jafnvel þótt við bregðumst hratt við þá þurfum við að læra að lifa á annan hátt en við erum vön. Þeir sem halda um budduna bjarga ekki málunum. Það gerum við. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun