Fótbolti

Kolbeinn Sigþórsson valinn á ný í landsliðið: Þessir 29 fara til Bandaríkjanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson á góðri stundu á EM í Frakklandi 2016.
Kolbeinn Sigþórsson og Gylfi Þór Sigurðsson á góðri stundu á EM í Frakklandi 2016. Vísir/EPA
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, tilkynnti í dag 29 manna hóp sinn fyrir Bandaríkjaferð íslenska landsliðsins seinna í þessum mánuði.

Heimir og Knattspyrnusamband Íslands héldu blaðamannafund í Laugardalnum þar sem farið var yfir mars-verkefni íslenska landsliðsins.

Heimir ætlaði að velja 30 manna hóp en ákvað að kalla ekki á nýjan leikmenn þegar Gylfi Þór Sigurðsson meiddist.

Íslenska landsliðið spilar þá vináttulandsleiki við Mexíkó og Perú en þetta eru síðustu leikir liðsins áður en Heimir velur HM-hópinn sem fer til Rússlands í júní.

Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson kemur aftur inn í landsliðið eftir tæplega tveggja ára fjarveru en hann er byrjaður að spila aftur með varaliði Nantes. Kolbeinn lék síðast með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi 2016. Heimir sagðist ætla að skoða Kolbein.

Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason fá ekki leyfi til að koma til móts við íslenska landsliðið þar sem þeir eru meiddir. Aron Einar Gunnarsson verður með í fyrri leiknum en fer síðan til Cardiff en hann hefur verið að glíma við meiðsli..

Albert Guðmundsson og Samúel Kári Friðjónsson fara báðir í verkefni með 21 árs landsliðinu 26. mars og verða því ekki með hópnum allan tímann.

Það vekur athygli að í hópnum eru fimm markverðir og það verður því greinilega hart barist um markvarðarstöðurnar þrjár í íslenska hópnum á HM í Rússlandi. Það eru líka sex miðverður í hópnum.

Fyrri leikurinn er á móti Mexíkó í San Francisco 23. mars en sá síðari er á móti Perú í New Jersey 27. mars.

29 manna hópur Heimis Hallgrímssonarmynd/ksí


Íslenski landsliðshópurinn í Bandaríkjaferðinni:

Markverðir (5):

Hannes Þór Halldórsson, Randers

Ögmundur Kristinsson, Excelsior

Rúnar Alex Rúnarsson, Nordsjælland

Frederik Schram, Roskilde FK

Ingvar Jónsson, Sandefjord

Varnarmenn (10):

Kári Árnason, Aberdeen

Ragnar Sigurðsson, Rostov

Birkir Már Sævarsson, Valur

Hörður Björgvin Magnússon, Bristol City

Ari Freyr Skúlason, Lokeren

Sverrir Ingi Ingason, Rostov

Hjörtur Hermannsson, Bröndby

Jón Guðni Fjóluson, IFK Norrköping

Hólmar Örn Eyjófsson, Levski Sofia

Samúel Kári Friðjónsson, Vålerenga

Miðjumenn (8):

Aron Einar Gunnarsson, Cardiff

Birkir Bjarnason, Aston Villa

Jóhann Berg Guðmundsson, Burnley

Emil Hallfreðsson, Udinese

Theódór Elmar Bjarnason, Elazigspor

Ólafur Ingi Skúlason, Kardemir Karabükspor

Arnór Ingvi Traustason, Malmö

Rúrik Gíslason, Sandhausen

Sóknarmenn (6):

Kolbeinn Sigþórsson, Nantes

Jón Daði Böðvarsson, Reading

Björn Bergmann Sigurðarson, Rostov

Albert Guðmundsson, PSV Eindhoven

Viðar Örn Kjartansson, Maccabi Tel Aviv

Kjartan Henry Finnbogason, Horsens


Tengdar fréttir

Heimir tilkynnir HM-hópinn sinn 11. maí

Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, ætlar að velja lokahóp sinn á Heimsmeiststaramótinu í Rússlandi á undan flestum öðrum þjóðum eða rúmum mánuði fyrir fyrsta leik.

Svona var blaðamannafundur Heimis

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag hvaða leikmenn fara með íslenska landsliðinu til Bandaríkjanna þar sem Ísland spilar tvo vináttulandsleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×