Hóf fyrirsætuferilinn óvænt 85 ára gamall Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 5. desember 2014 08:00 Gulli tók sig vel út fyrir framan myndavélina. Vísir/Elisabeth Toll „
Ég komst að því að það er bara bölvað púl að sitja svona fyrir,“ segir Gunnlaugur Jónasson, Gulli, fyrrum bóksali á Ísafirði, sem á dögunum landaði sínu fyrsta fyrirsætuverkefni 85 ára gamall og sat óvænt fyrir í nýja Geysistímaritinu. „Þetta var nú í gegnum klíkuskap. Barnabarnið mitt þekkti einhvern þarna í hópnum og vissi að það vantaði kall svo hún bað mig um að koma,“ segir Gulli. „Þetta var heilmikið umstang. Ég er nú svo sem enginn fagmaður, ég var bara settur í úlpu og svo var smellt af, ætli þetta hafi ekki verið um fimmtíu myndir,“ segir hann. Myndatökur fyrir Geysisbæklinginn áttu að fara fram fimmtudag einn í nóvember og voru allir mættir vestur nema sminkan og fyrirsæturnar, sem áttu að koma með flugi. Vegna veðurs komust þau ekki og voru þá góð ráð dýr. Gulli, sem áður starfaði sem bóksali á Ísafirði, hafði gaman af þessu óvænta og nýja verkefni svo það lá fyrir að spyrja hvort hann ætlaði að taka að sér fleiri fyrirsætuverkefni. „Ja, ég hef nógan tíma núna svo það er aldrei að vita nema maður nái einhverjum frama sem fyrirsæta. Ég hef nú bara landað þessum eina samningi, en ef menn hafa áhuga þá bara hafa þeir samband við mig,“ segir hann. Hulda Halldóra Tryggvadóttir stílisti sá um stíliseringu í myndatökunni og endaði hún sjálf á forsíðu tímaritsins. „Það var smá panikk, engar fyrirsætur og góð ráð dýr. Sænski ljósmyndarinn Elisabeth Toll kom til landsins til að sjá um myndaþáttinn þrátt fyrir annríki svo það var ekkert svigrúm fyrir aukadaga,“ segir Hulda Halldóra, en hún ásamt hárgreiðslukonunni og aðstoðarljósmyndaranum tók að sér nýtt hlutverk fyrir framan myndavélina. Að auki fengu þau nokkra velviljaða Vestfirðinga til þess að vera fyrirsætur í einn dag. „Það er ótrúlegt hvað allir voru hjálplegir. Ísfirðingar og Flateyringar eiga þakkir skilið fyrir einstaka gestrisni,“ segir hún.
Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Ólétt 52 ára Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Sjá meira