Landic Property tekur þátt í byggingu heilsu- og lækningamiðstöðvar 14. febrúar 2008 21:20 Oddur Steinarsson læknir.
Samið hefur verið um að fasteignafélagið Landic Property taki þátt í byggingu heilsu- og lækningamiðstöðvar í Vetrarmýrinni í Garðabæ. Oddur Steinarsson læknir og einn forsvarsmanna verkefnisins og Páll Benediktsson, talsmaður Landic Property, staðfestu þetta við Vísi í dag. „Samningurinn felur í sér að þeir koma inn í félagið með okkur og leggja til alla sína sérþekkingu sem þarf til að byggja upp og reka þetta hús," segir Oddur. Oddur segir að hugmyndin að baki verkefninu sé svipuð og sú sem hafi verið að baki byggingu Domus Medica fyrir 40 árum síðan. Þó telur Oddur að það verði ýmislegt í heilsumiðstöðinni sem ekki sé að finna í Domus. Svo sem sjúkraþjálfun, endurhæfing, heilsutengdar verslanir, hótel og fleira. „Við viljum sameina margskonar einingar úr heilbrigðisþjónustunni á einum stað," segir Oddur. Hann segir að verið sé að vinna að samningum við verktaka og bæjaryfirvöld í Garðabæ. „Svo verður farið í hönnunarvinnu og vonandi verða framkvæmdir eitthvað byrjaðar á þessu ári," segir Oddur. Oddur segist ekkert vera smeykur þótt miklar væringar séu á fjármálamörkuðum þessa dagana. „Ja, það er niðursveifla í dag, en við teljum að hún muni ekki vara í mörg ár," segir Oddur og bætir við að bygging heilsumiðstöðvarinnar grundvallist á núverandi markaðsgreiningu.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira