Fastur heimilislæknir – sjálfsögð réttlætiskrafa Eyjólfur Guðmundsson skrifar 26. júlí 2013 08:51 Flestir eru sammála um að heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu en veikburða heilsugæsla leiðir óhjákvæmilega til aukins kostnaðar fyrir samfélagið, svo ekki sé talað um óþarfa áhyggjur og vanlíðan fólks sem þarf að leita dýrari lausna á heilsufarsvandamálum en þörf krefur. Vel starfandi heilsugæsla er gríðarlega mikilvæg til að skapa jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag, fötlun eða félagslegri stöðu og er grunnurinn að markvissri lýðheilsustefnu. Málið snýst um jöfnuð en þrátt fyrir að sjúkratryggingakerfið á Íslandi eigi að tryggja jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu eru þúsundir einstaklinga ekki skráðar hjá föstum heimilislækni. Þetta vita stjórnvöld og hafa gert lengi en ekki beitt sér með skipulegum hætti til að efla heilsugæsluna undanfarin ár. Heilsugæslustöðvarnar eru mikilvæg þjónustufyrirtæki en hún er ekki öfundsverð staða móttökuritarans sem þarf alltof oft að svara símtölum á þessa leið: „Nei, því miður, við getum ekki skráð fleiri á stöðina og erum ekki með lausan tíma hjá lækni í dag.“ Á Alþingi karpa stjórnmálamenn um hugtök eins og „einkavæðingu“ og „ríkisrekstur“ og hver þeirra mænir bara á aðra leiðina en enginn virðist hafa áhyggjur af ástandinu eða ræða um alvöru lausnir.Réttur allra þegna Undanfarin ár hafa hin norrænu ríkin byggt upp grunnþjónustu sem byggir á rétti allra þegna til að skrá sig hjá föstum heimilislækni með því markmiði að tryggja sjúklingum öryggi og samfellu í þjónustu. Skýrt ákvæði er í lögum um skyldu ríkisins, t.d. í Svíþjóð, að skipuleggja grunnþjónustu í heilbrigðiskerfinu þannig að allir hafi möguleika til að velja sér fastan heimilislækni. Markmiðinu er náð með skýrum þjónustusamningum og fjölbreyttum rekstrarformum. Rekstrarfé snýst um fjölda skráðra skjólstæðinga á heilsugæslustöðina en ekki fjölda koma eða þjónustuviðvika þannig að hér er um afmarkaða upphæð að ræða en ekki opinn krana eða óútfyllta ávísun. Hvatinn í kerfinu byggir á því að viðskiptavinurinn sé ánægður og leiti ekki eftir þjónustu annars staðar. Markmiðið er að sjálfsögðu einnig að rekstrarfé nýtist betur beint í þjónustu við sjúklinga en minna í yfirbyggingu og stjórnun. Í dæminu um móttökuritarann áðan snýst því dæmið við: „Já, viltu ekki skrá þig á stöðina hjá okkur, við erum með tíma í dag.“ Aðilar með tilskilin réttindi og gæðastaðla geta rekið heilsugæslustöð og er eftirlitið strangt.Forsenda jöfnuðar Almenn ánægja ríkir um þetta fyrirkomulag meðal sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks þar sem afköst hafa aukist en útgjöld lækkað. Fjölbreytni í rekstrarformum í heilsugæslu eykur áhuga lækna á heimilislækningum og skapar um leið eðlilegri starfsskilyrði og samkeppnisstöðu gagnvart öðrum þjónustustigum innan heilbrigðiskerfisins. Gleymum því ekki að mikilvægi heilsugæslu liggur í góðri yfirsýn yfir heilsufar sjúklinga sem auðveldar forvarnir, greiningu og meðferð langvinnra sjúkdóma og lífstílssjúkdóma. Þess misskilnings gætir oft og ekki síst meðal ráðamanna að heilsugæslan sinni minniháttar veikindum hjá annars frísku fólki. Rannsóknir hafa sýnt að heilsugæsla mönnuð sérfræðingum í heimilislækningum getur leyst úr vanda allt að 90% þeirra sem til hennar leita og er því aðeins í undantekningartilfellum þörf á dýrari þjónustu annarra sérfræðilækna eða sjúkrahúsþjónustu. Eftir hverju eruð þið að bíða í heilbrigðisráðuneytinu? Gerið öllum þegnum landsins mögulegt að skrá sig hjá föstum heimilislækni en það er forsenda jöfnuðar og grunnur að markvissri lýðheilsustefnu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun Halldór 14.06.2025 Halldór Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir Skoðun Brotin stjórnarandstaða í fýlu Arnar Steinn Þórarinsson Skoðun Úthlutun Matvælasjóðs Fjóla Einarsdóttir Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson Skoðun Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum Davíð Stefán Guðmundsson Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum Davíð Stefán Guðmundsson skrifar Skoðun Versta sem gæti gerzt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Brotin stjórnarandstaða í fýlu Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Úthlutun Matvælasjóðs Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti næst ekki með ranglæti Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason skrifar Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar Skoðun Verkin sem ekki tala Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Vindhögg Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Staða leikskólamála í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindaraðstoð: Kennarinn endurheimtir dýrmætan tíma Björgmundur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar
Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar
Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar
Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun