Viðskipti innlent

Kauphöllin fær undanþágu frá gjaldeyrisreglum SÍ

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að viðskipti með erlend verðbréf í kauphöllinni verði undanþegin takmörkunum á fjárfestingu. Þar með er framtíð færeysku félaganna fjögurra tryggð áfram í kauphöllinni.

Í tilkynningu um málið segir að sem svar við beiðni kauphallarinnar hafi Seðlabanki Íslands ákveðið að viðskipti með erlend verðbréf í Kauphöllinni verði undanþegin takmörkunum á fjárfestingu samanber lögin um gjaldeyrishöftin sem sett voru nýlega. Skilaskylda helst þó við sölu hlutabréfa.

Þann 2. desember óskaði kauphöllin eftir því við Seðlabankann að viðskipti með færeysk verðbréf sem tekin hafa verið til viðskipta í Kauphöllinni yrðu undanþegin reglum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrismál frá 28. október 2008.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×