Holurnar í samfélaginu Árni Gunnarsson skrifar 4. júní 2016 07:00 Sagt er að íslenskt samfélag standi óvenju vel um þessar mundir. Skuldir eru lágar og tekjur háar. Höfð voru eftir forsætisráðherra eftirfarandi orð : „Hagkerfið stendur í blóma, kaupmáttur vex hröðum skrefum og verðbólga hefur í meira en tvö ár verið undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Mikill afgangur er á ríkissjóði, skuldir ríkisins lækka hratt og erlend staða þjóðarbússins hefur aldrei verið betri. Aldrei.“ Gott ef satt er, en þessi lýsing nær samt ekki til þeirra sem allra verst eru settir í samfélaginu. Það eru víðar holur í samfélaginu en á götum borgarinnar. Rauði krossinn hefur einbeitt sér að því að þjóna þeim einstaklingum sem eru berskjaldaðir í samfélaginu. Orðið berskjaldaður þýðir m.a. að vera óvarinn, hlífðarlaus. Á hverjum mánuði sinnir Rauði krossinn um 130 heimsóknum sprautufíkla, sem margir eru á vergangi, og býður þeim skaðaminnkandi ráðgjöf með aðstoð sjálfboðaliða úr hópi heilbrigðisstarfsmanna. Rauði krossinn rekur Konukot í samkomulagi við Reykjavíkurborg en það er athvarf fyrir heimilislausar konur. Þar er boðið upp á kvöldmat og morgunmat auk næturgistingar. Undanfarið hafa verið á milli 10 og 15 gestir í athvarfinu og sjálfboðaliðar annast eldamennsku og hússtörf önnur. Hælisleitendur sem fengið hafa hér dvalarleyfi eru margir hverjir á vergangi vegna húsnæðiseklu. Rauði krossinn býður þeim ráðgjöf og haft er opið hús tvisvar í viku þar sem þeir koma saman. Aðstæður margra í þeim hópi eru afar erfiðar, sérstaklega þar sem börn og eldra fólk er á ferðinni. Miðað við síðustu mánuði er líklegt að um eða yfir 100 hælisleitendur fái dvalarleyfi hér á landi á árinu.Njóta ekki veislunnar í hagkerfinu Hér eru nefndir nokkrir af þeim hópum í samfélaginu okkar sem eru gleymdir. Ekki er fréttnæmt að segja frá þeirra högum enda fæstir þeirra að nýta kosningarétt sinn eða tala sínu máli. Hægt er að halda áfram að telja upp hópa sem ekki njóta veislunnar í hagkerfinu. Hjúkrunarheimilin sem þjóna elsta og mest veikburða einstaklingum samfélagsins ramba mörg á barmi gjaldþrota. Það er smán. Getum við sem þjóðfélag ekki einsett okkur að útrýma fátækt og búa heimilislausum betri aðstöðu? Getum við mismunað þeim sem hingað leita á flótta frá stríði, fátækt og náttúruhörmungum? Fordómar stafa af ótta við hið óþekkta. Fræðumst meira um menningu og trúarbrögð annarra þjóða og þá skiljum við hvert annað betur. Horfumst í augu við heimilislausa Íslendinga og setjum okkur í þeirra spor. Mannréttindi fara ekki í manngreiningarálit né spyrja um vegabréf. Þau eru allra. Það orðspor sem nú fer af efnahagsuppgangi á Íslandi er gott, okkur hefur tekist með undraverðum hraða að ná aftur fótfestu. En efnahagsundrið má ekki vera bara fyrir suma. Með stuðningi við samtök eins og Rauða krossinn geta allir lagt sitt að mörkum til að gera samfélagið betra. Stuðningurinn getur verið hvort sem er regluleg fjárframlög, einstök framlög eða stuðningur í formi sjálfboðins starfs. Verkefnin eru næg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson Skoðun Skoðun Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar