Dagný: Þurfum allar að eiga hundrað prósent leik Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 7. desember 2012 10:00 Dagný Skúladóttir. Mynd/Stefán
Dagný Skúladóttir og aðrir hornamenn íslenska kvennalandsliðsins í handbolta fá vonandi fleiri tækifæri á því að skora hraðaupphlaupsmörk á móti Rússum í kvöld en í fyrstu tveimur leikjum liðsins á EM í handbolta kvenna í Serbíu. Íslenska liðið þarf sigur til þess að komast upp úr riðlinum. „Þetta er hreinn úrslitaleikur og það er bara gaman að því að fá úrslitaleik um að komast inn í milliriðil. Við erum bara spenntar," sagði Dagný Skúladóttir eftir æfingu í gær. „Það var sárt að tapa leiknum við Rúmena því við áttum bullandi möguleika í honum en þrátt fyrir það var þetta flottur leikur af okkar hálfu. Við erum að mæta sterkum þjóðum og vitum að hver leikur er mjög erfiður. Það er allavega stígandi í þessu hjá okkur," sagði Dagný. „Ef við ætlum að eiga möguleika í þessi lið þá verðum við að fá þessi ódýru mörk. Það er svo ótrúlega erfitt að stilla upp í sókn á móti þessum sterku vörnum. Við verðum því að skila þessum fimm til sex hraðaupphlaupsmörkum í leik ef við ætlum að eiga möguleika," sagði Dagný. „Við þurfum að koma boltanum hraðar upp völlin, hvort sem það er í fyrsta tempó eða öðru tempói af hraðauuphlaupi. Við erum mikið búin að tala um þetta og stefnum á það að gera betur á morgun," sagði Dagný. „Þær eru ekki eins hávaxnar og þær hafa verið undanfarin ár en á móti kemur að þær eru komnar með unga, ferska og fljóta leikmenn. Það þarf svo margt til þess að þetta smelli. Það þarf bara að berja á þeim í vörninni og fá þessi ódýru mörk," sagði Dagný. „Við eigum allar svolítið inni og þurfum allar að eiga hundrað prósent leik á morgun (í dag) ef við ætlum að eiga möguleika á þessu. Við erum ennþá að bíða eftir fyrsta sigrinum á EM og það yrði glæsilegt að komast áfram," sagði Dagný.
Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Í beinni: KA - KR | Krísa hjá gestunum Íslenski boltinn Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 0-3 | Keflvíkingar á leið í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Þróttur - HK 2-3 | Mæta Keflavík í úrslitum eftir markaveislu Íslenski boltinn Fyrrverandi þjálfari Liverpool látinn Enski boltinn Stórmeistarajafntefli í Lundúnum Enski boltinn Elskar að spila fyrir Moyes sem hefur endurvakið feril hans Enski boltinn ÍBV - Afturelding 1-1 | Bæði mörkin skoruð beint úr aukaspyrnu Íslenski boltinn Hvort liðið ætlar að halda í við Liverpool? Enski boltinn Verstappen vann og Piastri úr leik á fyrsta hring Formúla 1 Fleiri fréttir Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Sjá meira