Stelpurnar geta slegið Rússa úr leik Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 7. desember 2012 06:45 Stella hefur ekki fundið sig á em til þessa en kemur beitt til leiks í kvöld.fréttablaðið/stefán „
Við erum að reyna að hreinsa hugann og ætlum að koma brjálaðar í leikinn á morgun. Við þurfum að gleyma því sem er búið, koma ferskar til leiks og með hausinn hundrað prósent í lagi. Ég hef aðeins verið að svekkja mig á því hvernig er búið að ganga þannig að ég held að maður þurfi bara að byrja upp á nýtt," sagði Stella Sigurðardóttir um leikinn mikilvæga á móti Rússum á EM kvenna í handbolta í kvöld. Íslenska liðið tryggir sér sæti í milliriðlum með sigri sem yrði þá sannarlega sögulegur því íslenska liðið hefur aldrei unnið leik á EM og ennfremur aldrei unnið Rússa. „Það var mjög mikil bæting á okkar leik á móti Rúmeníu frá því í fyrsta leiknum og nú þurfum við bara að taka næsta skref. Við þurfum allar að eiga toppleik til þess að vinna Rússana. Þetta gæti orðið fyrsti sigurinn á EM og með honum gætum við komist í milliriðla. Það væri glæsilegur árangur ef það myndi takast. Við ætlum okkur það og höfum trúna í þetta verkefni. Við þurfum að gefa allt í þetta á morgun," sagði Stella. Íslenska liðið tapaði stórt fyrir Rússlandi í sextán liða úrslitunum á HM í Brasilíu fyrir ári síðan. „Við eigum harma að hefna og við hræðumst þær ekkert. Okkur gekk ágætlega á móti þeim og ef það er möguleiki á því að vinna Rússana þá er það núna. Þær eru ekkert búnar að vera að spila neitt frábærlega á þessu móti," sagði Stella og bætir við: „Það er ekki áhverjum degi sem maður fær tækifæri til að slá Rússa út úr EM og það væri glæsilegur árangur ef það myndi takast," sagði Stella.
Mest lesið Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Fótbolti „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Fótbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Golf Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn Golf Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira