Viðsnúningur hjá Booker í Bretlandi 22. maí 2008 14:38 Pálmi Haraldsson á þrjátíu prósenta hlut í Booker ásamt Baugi Group.
Booker, heildsölukeðjan í Bretlandi skilaði afbragðsgóðri afkomu á síðasta fjárhagsári. Baugur Group og eignarhaldsfélagið Fons eiga um 30 prósenta hlut í Booker. Á heimasíðu fyrirtækisins er greint frá því að hagnaður hafi stóraukist í kjölfar aukinnar sölu á tímabilinu, þrátt fyrir að blikur séu á lofti í verslunargeiranum. Viðsnúning fyrirtækisins, sem gekk inn í Blueheath í fyrra, má fyrst og fremst rekja til aukinnar sölu til veisluþjónustu og smásala í matvöruverslanarekstri. Salan jókst um 2,4 prósent og velti fyrirtækið 31 milljarði punda. Hagnaður fyrir skatta jókst um 27 prósent og nam hann 36,2 milljónum punda eða rúmum fimm milljörðum íslenskra króna. Arður til hluthafa nam átta milljónum punda. Charles Wilson, forstjóri Booker, segir að árið hafi verið stöðugt og að hann taki eftir aukinni ánægju á meðal viðskiptavina keðjunnar. Þá bendir hann á í frétt á heimasíðu fyrirtækisins að tekist hafi að grynnka á skuldum um 38 prósent á tímabilinu. „Booker hefur bætt sig verulega á síðastliðnum tveimur árum," segir Wilson. „Í september 2005 skuldaði fyrirtækið 361 milljón punda og salan dróst saman um sex prósent og hagnaður hafði sömuleiðis minnkað." Hann segir að í nóvember sama ár hafi verið skipt um stjórn í félaginu og þriggja þátta áætlun mótuð til að snúa dæminu við. „Sú áætlun er að ganga eftir og í dag eru skuldir 47 milljónir punda, salan eykst stöðugt og hagnaður af rekstri hefur aukist um 29 prósent," segir Wilson.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira