Tap Icelandair Group 1,7 milljarðar Óli Kristján Ármannsson skrifar 22. maí 2008 06:00 tölvugerð Dreamliner þota Einhver bið verður á því að nýju Dreamliner þotur Boeing sjáist í Icelandair Group litunum. Mynd/Boeing
Tap hluthafa Icelandair Group eftir fyrsta ársfjórðung nemur 1.678 milljónum króna, eða 1,68 krónum á hlut. Tapið er rúmum þriðjungi meira en í fyrra. Björgólfur Jóhannsson forstjóri félagsins segir niðustöðuna þó nokkru betri en ráð hafi verið fyrir gert. Hann bendir á að eldsneytiskostnaður hafi aukist um tæpan milljarð króna frá fyrsta fjórðungi. Þá hafi í fyrra verið bókfærður hagnaður upp á 1,2 milljarða vegna eignasölu. EBITDAR er afkomumælikvarði sem gjarnan er notaður í flugrekstri, en hann stendur fyrir rektrarhagnað fyrir afskriftir og leigu, en hún er undanskilin vegna hás hlutfalls eignarhaldskostnaðar í slíkum rekstri. EBITDAR Icelandair Group var 705 milljónir á fyrsta fjórðungi, en var einn milljarður á sama tíma í fyrra. Fram kemur í tilkynningu félagsins að samið hafi verið um útleigu á fyrstu Boeing 787 Dreamliner þotunni sem félagið er með í pöntun til Air Niugini, þjóðarflugfélags Papúa Nýju-Gíneu. Afhending á vélinni frestast frá 2010 vegna tafa hjá Boeing til ársins 2012. „Ekki hefur verið tekin ákvörðun um nýtingu á þeim fjórum Boeing 787 þotum sem Icelandair Group, þar með talið Travel Service, á til viðbótar í pöntun og eiga að afhendast á árunum 2012 til 2015, en ljóst er að flugvél þessarar gerðar verður ekki tekin inn í rekstur Icelandair fyrr en í fysta lagi árið 2014,“ segir í tilkynningu.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira