Skoðun

Með þinni hjálp

Jónas Þórir Þórisson skrifar

Hin árlega jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar er hafin. Eins og undanfarin ár hafa gíróseðlar verið sendir inn á heimili landsmanna að upphæð kr. 2.500. Yfirskrift söfnunarinnar er Vilt þú hjálpa?

Hjálparstarf kirkjunnar vill minna á að „það er gott að gefa“. Það er gott að geta verið í þeirri stöðu að rétta öðrum hjálparhönd hvort sem það er hér á okkar landi eða erlendis.

Hjálparstarf kirkjunnar hefur í mörg ár sinnt öflugu hjálparstarfi bæði hér heima og erlendis. Jólasöfnunin hefur verið helguð erlendu hjálparstarfi en innanlandshjálpin er rekin fyrir sérmerkt framlög einstaklinga, félaga, fyrirtækja og opinberra aðila og verið viðamesta einstaka verkefnið sem stofnunin hefur sinnt undanfarin ár.

Vegna þess ástands sem nú ríkir í þjóðfélaginu ákvað stjórn Hjálparstarfsins að helmingurinn af almennu söfnunarfé rynni til innanlandshjálpar en hinn helmingurinn til vatnsverkefna í Afríku. Þeir sem vilja leggja Hjálparstarfinu lið geta greitt heimsendan gíróseðil eða hringt í söfnunarsíma 907 2002 og þá rennur framlag þeirra kr. 2.500 til aðstoðar innanlands. Hringi þeir í síma 907 2003 rennur sama upphæð til hjálparstarfa erlendis. Einnig er hægt að fara inn á gjafasíðurnar gjöfsemgefur.is og framlag.is og velja sér verkefni til að styðja.

Hjálparstarf kirkjunnar hefur lagt mikla áherslu á fagleg og vönduð vinnubrögð bæði hér heima og í hjálparstarfi erlendis. Reynt er að forðast að gera þiggjandann háðan aðstoðinni. Markmiðið er alltaf hjálp til sjálfshjálpar. Hjálparstarfið hefur tekið að sér skuldbindingar erlendis til nokkurra ára í senn. Reynt verður eftir fremsta megni að standa við þær enda eiga margir allt sitt undir því komið og ekki er hægt að hlaupa frá þeirri ábyrgð sem við höfum axlað í því samhengi.

Á sama hátt hefur Hjálparstarf kirkjunnar hlutverki að gegna hér innanlands. Stofnunin sinnir neyðaraðstoð í samstarfi við presta, félagsráðgjafa og annað fagfólk um allt land. Þörfin fyrir aðstoð hefur aukist mjög síðustu mánuðina og margir hafa í fyrsta skipti þurft að stíga þau þungu spor að leita til Hjálparstarfsins eftir bráðustu nauðsynjum. Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í samfélaginu mun stofnunin að sjálfsögðu takast á við þau erfiðu verkefni sem fram undan eru og veita þá hjálp sem möguleg er.

Geta Hjálparstarfs kirkjunnar nær þó ekki lengra en það fjármagn sem hún hefur til raðstöfunar hverju sinni. Því ríður á að við öll sem höfum einhverju að miðla gleymum ekki náunga okkar, hvort sem hann býr hér á landi eða í öðrum löndum. Oft hefur verið þörf fyrir aðstoð en nú er nauðsyn. Tökum höndum saman og leggjumst á árarnar. Þjóðin hefur allt til þess að bera að sigrast á þeim erfiðleikum sem nú steðja að og einnig rétta öðrum þjóðum hjálparhönd. Gleðilega aðventu.

Höfundur er framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar.




Skoðun

Sjá meira


×