Lífið

Gunnleifur og Hildur flytja úr 250 fermetra einbýlishúsi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hildur og Gunnleifur færa sig um set.
Hildur og Gunnleifur færa sig um set.

Knattspyrnumaðurinn Gunnleifur Vignir Gunnleifsson og eiginkona hans Hildur Einarsdóttir ætla færa sig um set og flytja úr glæsilegu einbýlishúsi í Austurkór í Kópavogi á sölu.  DV greinir fyrst frá.

Um er að ræða 250 fermetra einbýlishús á fallegri útsýnislóð í Kópavogi.

Húsið var byggt árið 2017 og eru þrjú barnaherbergi og hjónasvíta í eigninni.

Fasteignamat hússins er rúmlega 84 milljónir en ásett verð er 99,5 milljónir. Tvö baðherbergi eru í húsinu og bílskúr.

Hér að neðan má sjá myndir af einbýlishúsinu.

Uppfært klukkan 15:19 - Í fyrri útgáfu af fréttinni kom fram að Gunnleifur og Hildur væru eigendur eignarinnar en hið rétta er að húsið er í eigu Skuggabyggð ehf. Mbl.is greindi frá því. 

Húsið var byggt árið 2017.
Útsýnið gott úr eigninni.
Eldhús og stofa samliggjandi í mjög björtu og fallegu rými.
Virkilega smekklegt eldhús.
Hér má sjá útsýnið úr borðstofunni.
Sjónvarpsholið er samliggjandi með borðstofu, stofu og eldhúsi í einu stóru rými.
Hjónasvítan falleg. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×