Minnst þrír látnir vegna skýstróka og óveðurs Samúel Karl Ólason skrifar 17. desember 2019 11:36 Sjálfboðaliðar leita í rústum kirkju í Guntown í Mississippi. AP/Thomas Wells
Minnst þrír eru látnir og einhverjir særðir eftir að óveður fór yfir suðausturhluta Bandaríkjanna og skyldi eftir sig slóð eyðileggingar. Óveðrinu fylgdu skýstrókar sem rifu þök af húsum, jöfnuðu heimili við jörðu og felldu tré og rafmagnslínur. Lentu þeir í Louisiana, Mississippi, Alabama og Texas. Tveir dóu í Alabama og einn í Louisiana. Sá sem lést í Louisiana dó þegar skýstrókur lenti á heimili hans. Björgunaraðilar eru á störfum í rústum og er óttast að fleiri hafa slasast eða jafnvel dáið. Upplýsingar eru á reiki þar sem enn er myrkur vestanhafs. Betur fór en á horfði á öðrum stað í ríkinu þar sem skýstrókur reif þak af kirkju. Skömmu áður var hópur barna fluttur úr kirkjunni, samkvæmt AP fréttaveitunni.Sá skýstrókur fór alls 101 kílómetra vegalengd um Alexandria-sýslu. Veðurfræðingur lýsti þeirri vegalengd sem „fáránlegri“. Enn á þó eftir að staðfesta að skýstrókurinn var á jörðinni alla leiðina. „Ég veit ekki hvað gögn okkar sem segja um lengstu vegalengdina á þessu svæði, en þetta hlítur að vera ansi nálægt því,“ sagði Donald Jones, veðurfræðingur, við AP.
Bandaríkin Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira