Sonur Osama bin Laden talinn af Vésteinn Örn Pétursson skrifar 31. júlí 2019 23:33 Hamza bin Laden og Osama bin Laden. Samsett/Vísir
Hamza bin Laden, sonur stofnanda hryðjuverkasamtakanna Al-Kaída, Osama bin Laden, er fallinn. Þetta hafa fjölmiðlar vestanhafs eftir ónefndum bandarískum embættismönnum. Hamza var líkt og faðir sinn hluti af Al-Kaída samtökunum.Fréttastofa NBC hefur eftir þremur embættismönnum að bin Laden sé fallinn, en greinir ekki frá því hvar eða hvenær hann lést, né heldur hvor Bandaríkjamenn hafi komið að andláti hans með einhverjum hætti. Þegar Donald Trump var spurður út í hvort Bandaríkin hefðu upplýsingar um andlát bin Laden á blaðamannafundi í dag sagði hann einfaldlega „Ég vil ekki tjá mig um það.“ Síðustu opinberu skilaboð bin Laden birtust á miðlum á vegum Al-Kaída. Þar kallaði hann eftir því að íbúar á Arabíuskaga gerðu uppreisn gegn núverandi stjórnvöldum þar. Hamza bin Laden er talinn hafa verið fæddur í kring um 1989. Þá er talið að hann hafi verið að undirbúa sig undir að taka stjórnina innan Al-Kaída og leiða samtökin til „fyrri dýrðar,“ en samtökin hafa staðið höllum fæti á undanförnum árum, meðal annars þökk sé vexti samtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki, ISIS. Osama bin Laden féll í Pakistan þann 2. maí árið 2011 fyrir hendi sérþjálfaðra bandarískra hermanna, að skipan þáverandi Bandaríkjaforseta, Baracks Obama.
Andlát Bandaríkin Pakistan Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira