Mannfall meðal borgara í Afganistan nær nýjum hæðum Samúel Karl Ólason skrifar 24. febrúar 2019 09:59 Sameinuðu þjóðirnar segja 3.804 borgara hafa fallið og 7.189 hafa særst í fyrra og ellefu prósentum fleiri hafa dáið á milli ára. Á meðal hinna látnu eru 927 börn. AP/Rahmat Gul
Fleiri almennir borgara féllu í Afganistan í fyrra en nokkurn tímann áður frá 2009. Sameinuðu þjóðirnar segja 3.804 borgara hafa fallið og 7.189 hafa særst í fyrra og ellefu prósentum fleiri hafa dáið á milli ára. Á meðal hinna látnu eru 927 börn. Sjálfsmorðs- og sprengjuárásir voru gífurlega margar í fyrra en rannsakendur SÞ segja að rúmlega 500 manns hafi fallið í loftárásum en þeim árásum hefur fjölgað gífurlega. Þá segja Sameinuðu þjóðirnar að vísvitandi árásum á borgara hafi fjölgað. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Í skýrslunni segir að minnst 32 þúsund almennir borgarar hafi fallið og um 60 þúsund hafi særst á þeim áratug sem dauðsföll hafa verið tekin saman. Tadamichi Yamamotu, sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna gagnvart Afganistan, segir bestu leiðina til að koma í veg fyrir frekari mannfall meðal borgara vera að binda enda á átökin.Hann segir mannfall meðal almennra borgara vera óásættanlegt. Friðarviðræður á milli Talibana og Bandaríkjanna hafa átt sér stað á undanförnu og verður haldin ný samningalota í Katar á morgun, samkvæmt BBC.Ashraf Ghani, forseti Afganistan, sagði í byrjun ársins að rúmlega 45 þúsund hermenn og lögregluþjónar hefðu fallið í árásum og átökum við Talibana frá því hann tók við völdum árið 2014.
Afganistan Bandaríkin Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Segir klútabyltinguna vera hafna Innlent Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Innlent Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Innlent Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Innlent Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins