Sofna ekki á verðinum Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 17. ágúst 2019 09:30 Spenntur hópur ungs hinsegin fólks sem flest stundar félagsstarf í Hinsegin félagsmiðstöðinni. Miðstöðin er fyrir öll ungmenni á aldrinum 13-18 ára sem eru hinsegin eða tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Frá vinstri: Stefán, Ísak, Bergdís, Óðinn, Silja, Bernharð Máni, Rakel, Salka Snæbrá, Diljá, Silja Sól, Robin, Emma, Sigrún Ósk, Þór, Birgitta, Salka, Arna, Sigrún Helga, Sky og Ívar. Fréttablaðið/Ernir
Gleðigangan í Reykjavík hefur verið árviss viðburður frá árinu 1999 og ein fjölsóttasta hátíð á Íslandi. Yngstu þátttakendur hennar njóta góðs af baráttunni síðustu áratugi, eru þakklátir en segja mikilvægt að halda baráttunni áfram. Þau nefna sem dæmi að enn ríki fordómar gagnvart hópum hinsegin fólks og intersex fólk sé hlunnfarið um réttindi hér á landi. Þrjú ungmenni ræddu málin við blaðamann Fréttablaðsins.Ólöglegt að vera ég í hundrað löndum Salka Snæbrá Hrannarsdóttir er sextán ára, vinnur í Krónunni og hefur nám í Kvennaskólanum í haust. Hún tekur þátt í gleðigöngunni í annað sinn. „Ég kom fyrst út úr skápnum fyrir þremur árum en þá aðeins fyrir vinum mínum. Ári seinna kom ég út fyrir öllum,“ segir Salka Snæbrá sem segist svo heppin að hafa alist upp við margbreytileika og fordómaleysi. „Besta vinkona mín á tvær mömmur og ég er alin upp við það að ólíkar kynhneigðir séu í lagi. Ég veit samt að það er margt í samfélaginu sem þarf að skoða, það eru fordómar gagnvart transfólki og tvíkynhneigðum. Við erum komin langt en það er samt svo mikið eftir, ég hugsa til dæmis oft út í það að það er ólöglegt að vera ég í hundrað löndum, það finnst mér hrollvekjandi.“ Salka Snæbrá segir það hafa breytt miklu í sinni tilveru að hafa sótt félagsstarf í Hinsegin félagsmiðstöðinni. „Þetta er í raun bara eins og venjuleg félagsmiðstöð en við eigum það mörg sameiginlegt að vera hinsegin. Það er mikilvægt að eiga þennan stað og geta hitt aðra hinsegin. Sérstaklega fyrir fólk sem á til dæmis bara gagnkynhneigða fjölskyldu og vini,“ segir Salka Snæbrá. „Þetta hjálpaði mér mikið, eiginlega breytti þetta lífi mínu. Því ég sker mig úr hópnum annars staðar, er sú sem er öðruvísi eða þykir skrýtin, en í félagsmiðstöðinni er ég bara ein af hópnum og hef þá tilfinningu að ég eigi heima þar,“ segir hún og minnir á að mæta með góða skapið í gleðigönguna. „Vagninn okkar verður flottur og tónlistin verður geggjuð!“Glatað að skilja intersex-fólk eftir Silja Sól Ernudóttir er sextán ára og skartar ljósfjólubláum lokkum, það kemur í ljós að hún hefur mikinn áhuga á hárgreiðslu og er á leiðinni í háriðnnám í Tækniskólanum í Reykjavík. „Ég verð líka á palli í annað sinn. Ég hef fylgst með göngunni í fjögur ár, ég kom fyrst út úr skápnum 10-11 ára og fyrst skilgreindi ég mig sem tvíkynhneigða. Það hefur breyst, nú skilgreini ég mig sem pankynhneigða. Fjölskylda mín hefur alltaf stutt við mig og ég hef líka getað stutt við aðra sem hafa viljað ræða sín vandamál og sína sýn á málin. Ég sæki líka Hinsegin félagsmiðstöðina og það hjálpaði mér að eignast vini. Ég þekkti áður engan á mínum aldri sem var með sömu áhugamál og ef ég hefði ekki farið þá hugsa ég að ég hefði einangrast mjög mikið. Ég er svo miklu opnari í dag, „out and proud!“ eins og þau segja.“ Silja Sól segir ný lög um kynrænt sjálfræði framfaraspor en segir með ólíkindum að réttindi intersex fólks hafi verið borð borin. „Það er bara glatað, þau voru bara skilin eftir. Samfélaginu er að sjálfsögðu skylt að varðveita þeirra réttindi einnig og geta ekki litið fram hjá þeim eins og gert er nú.“Þakklátur fyrir að fá að vera ég sjálfur Ísak Birgisson er einnig sextán ára og hefur nám í Kvennaskólanum í haust. Þar ætlar hann að leggja stund á náttúruvísindi og hlakkar mikið til áfangans. Hann man upp á hár daginn sem hann ákvað að segja frá samkynhneigð sinni. „Já, það var 18. mars 2018. Ég nennti ekki að koma út fyrir einum í einu. Ég teiknaði mynd af mér og setti á Facebook og lýsti því yfir að ég væri samkynhneigður. Þetta var mín leið, en það voru nú flestir í kringum mig búnir að átta sig á þessu hvort sem er,“ segir Ísak. Hann segir réttindabaráttuna mikilvæga enn sem fyrr. „Það hefur svo margt áunnist en á sama tíma koma oft upp atvik þar sem ég skil ekki hvað fólk er að hugsa. Mér finnst til dæmis koma Mike Pence til landsins algjörlega fáránleg,“ segir Ísak og segir fólk sem heldur uppi vörnum fyrir hann ekki skilja um hvað málið snýst enda sé hann valdamikill maður sem hafi beitt sér mikið gegn hinsegin fólki og það séu einmitt stjórnmálamenn sem geti rænt fólk mannréttindum eins og gerst hefur víða um heim. „Ég er þakklátur þeim sem börðust fyrir svo mörgu. Það er svo margt sem við þurfum ekki að ganga í gegnum. Og fyrst og fremst er ég þakklátur fyrir að fá að vera ég sjálfur en við megum ekki sofna á verðinum.“
Birtist í Fréttablaðinu Hinsegin Reykjavík Tímamót Mest lesið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Bíó og sjónvarp Dragi úr trúverðugleika Eddunnar og útiloki fagfólk Bíó og sjónvarp Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið Catherine O'Hara er látin Lífið Fleiri fréttir Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Sjá meira