Kaupir umdeilda eign sonarins á Þingvöllum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 29. janúar 2019 06:00 Þingvallanefnd vildi kaupa 2016 og breyta í nestispall. Fréttablaðið/Garðar
Þingvallanefnd ákvað í nóvember að ganga ekki inn í viðskipti með steypugrunn innan friðlandsins á bakka Þingvallavatns. Um er að ræða grunn á lóðinni Valhallarstíg nyrðri 7 sem áður hefur verið í fréttum, síðast 2017 er Þingvallanefnd snerist hugur og ætlaði að ganga inn í kaup Gísla Haukssonar í Gamma á grunninum af hjónunum Boga Pálssyni og Sólveigu Dóru Magnúsdóttur fyrir 70 milljónir króna. Fjármálaráðuneytið sagði á endanum ekki forsendur til að kaupa eignina „miðað við það verð sem lagt hefur verið til grundvallar“. Gekk Gísli einnig úr skaftinu og grunnurinn var því áfram í eigu Boga og Sólveigar. Þingvallanefnd barst í október í haust bréf frá Boga. Hann hafði þá fengið tilboð í húsgrunninn frá föður sínum, Páli Samúelssyni. Páll var eigandi Toyota-umboðsins á Íslandi til 2005. Þingvallanefnd ákvað sem fyrr segir að nýta ekki forkaupsréttinn. Ekki er unnt að sjá að þessu sinni hvaða viðskiptum ríkið er að hafna því strikað er yfir kaupverðið í afriti af skjölum sem send voru Fréttablaðinu. „Nöfn og fjárhæðir hafa verið teknar út með vísan til 9. gr. upplýsingalaga,“ útskýrir þjóðgarðsvörður. „Óheimilt er að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á,“ segir í umræddri lagagrein. Samkvæmt fasteignaskrá var gefið út afsal fyrir eigninni til Páls Samúelssonar um miðjan desember.Sjá einnig: Hugleiða að breyta 70 milljóna grunni úr hruninu í nestispall í þjóðgarðinumÞegar málið kom á borð Þingvallanefndar á árunum 2016 og 2017 þótti verulegur vafi leika á því að framkvæmdir Boga og Sólveigar á árunum fyrir hrun samræmdust skilmálum. Í bréfi Ólafs Arnar Haraldssonar, þáverandi þjóðgarðsvarðar, til forsætisráðuneytisins í október 2016 rakti Ólafur Örn að Bogi og Sólveig hefðu látið rífa sumarhús á lóðinni og í stað þeirra hefði verið gerður 133,7 fermetra grunnur úr steinsteypu á stöplum með kjallara. Stærð kjallarans væri ekki innifalin í tilgreindri stærð. „Þingvallanefnd telur að þar sem sumarhúsin voru rifin og steyptur var í stað þeirra grunnur á stöplum ásamt kjallara séu hugsanlega í reynd brostnar forsendur fyrir því að endurbygging sumarhúsanna teljist til þeirra lagfæringa eða breytinga sem þegar var búið að samþykkja.“ Í svarbréfi Einars Á. E. Sæmundsen, núverandi þjóðgarðsvarðar, til Boga Pálssonar þar sem tilkynnt er um að fallið sé frá forkaupsréttinum er ekki minnst á efasemdir um að framkvæmt hafi verið í heimildarleysi á lóðinni. Hins vegar leiðbeint um hvernig halda megi byggingunni áfram. Til þess þurfi að sækja um nýtt byggingarleyfi hjá Bláskógabyggð þar sem gamla leyfið sé fallið úr gildi. Einnig þurfi samþykki Þingvallanefndar fyrir öllum framkvæmdum í þjóðgarðinum. Grunnurinn er á lóð í eigu ríkisins. Leigusamningur var endurnýjaður árið 2011 til tíu ára.
Birtist í Fréttablaðinu Bláskógabyggð Stjórnsýsla Þjóðgarðar Tengdar fréttir Geta beðið átekta uns leigutíminn rennur út Fjármálaráðuneytið bendir á að í stað þess að ríkið kaupi húsgrunn á leigulóð ríkisins við Þingvallavatn á 70 milljónir króna eins og Þingvallanefnd vildi sé hægt að bíða þar til leigusamningurinn rennur út eftir fjögur ár og fá þá lóðina til baka. 31. ágúst 2017 07:00 Fjármálaráðuneytið telur að Þingvallagrunnurinn sé of dýr Að mati fjármálaráðuneytisins eru ekki nægilegar forsendur til að hefja viðræður um kaup á húsgrunni á Þingvöllum sem þjóðgarðurinn vill eignast. 25. ágúst 2017 06:00 Ríkið greiddi 19 milljónir fyrir ónýtt hús á eigin Þingvallalóð Þingvallanefnd keypti ónýtt sumarhús við Þingvallavatn af þrotabúi fyrir rúmar 19 milljónir króna. Lóðin er í eigu ríkisins sjálfs sem framlengdi lóðarleigusamning til tíu ára rétt fyrir viðskiptin. 9. ágúst 2017 06:00 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira
Geta beðið átekta uns leigutíminn rennur út Fjármálaráðuneytið bendir á að í stað þess að ríkið kaupi húsgrunn á leigulóð ríkisins við Þingvallavatn á 70 milljónir króna eins og Þingvallanefnd vildi sé hægt að bíða þar til leigusamningurinn rennur út eftir fjögur ár og fá þá lóðina til baka. 31. ágúst 2017 07:00
Fjármálaráðuneytið telur að Þingvallagrunnurinn sé of dýr Að mati fjármálaráðuneytisins eru ekki nægilegar forsendur til að hefja viðræður um kaup á húsgrunni á Þingvöllum sem þjóðgarðurinn vill eignast. 25. ágúst 2017 06:00
Ríkið greiddi 19 milljónir fyrir ónýtt hús á eigin Þingvallalóð Þingvallanefnd keypti ónýtt sumarhús við Þingvallavatn af þrotabúi fyrir rúmar 19 milljónir króna. Lóðin er í eigu ríkisins sjálfs sem framlengdi lóðarleigusamning til tíu ára rétt fyrir viðskiptin. 9. ágúst 2017 06:00