Fótbolti

Manchester City og Liverpool fara bæði til Madrídar í 16 liða úrslitunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp með Meistaradeildarbikarinn glæsilega.
Jürgen Klopp með Meistaradeildarbikarinn glæsilega. Getty/ Quality Sport Images

Það voru mestar líkur á að ensku liðin Manchester City og Liverpool drógust á móti liðunum frá Madríd og það var líka raunin þegar dregið var í sextán liða úrslitin í dag.

Manchester City drógst fyrst á móti Real Madrid og fljótlega á eftir drógust Atlético Madrid og Liverpool saman. Í báðum viðureignum fer seinni leikurinn fram á Englandi.

Það er ljóst að verkefnið verður ekki mikið erfiðara en það sem bíður Pep Guadiola og lærisveina hans í Manchester City en Pep þekkir það vel að mæta á Santiagi Bernabeu.

Liverpool vann Meistaradeildina á heimavelli Atlético Madrid síðasta vor og snýr nú aftur á sama völl í fyrsta leik sínum í úrslitasláttarkeppninni í ár.

Chelsea mætir Bayern München og Tottenham fær líklega léttasta mótherjann af ensku liðunum eftir að hafa dregist á móti þýska liðinu RB Leipzig.

Barcelona þarf að fara til Napoli og Paris Saint Germain til Dortmund í Þýskalandi. Daprasti leikurinn er án efa viðureign Atalanta og Valencia en nýliðar Atalanta höfðu þar heppnina með sér.

Fyrri leikirnir í sextán liða úrslitunum fara fram 18. og 19. febrúar og 25. til 26. febrúar en seinni leikirnir fara fram 10. og 11. mars og 17. og 18. mars.

Leikirnir í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar 2019-20:

Leikur 1: Borussia Dortmund (Þýskaland) - Paris Saint-Germain (Frakkland)

Leikur 2: Real Madrid (Spánn) - Manchester City (England)

Leikur 3: Atalanta (Ítalía) - Valencia (Spánn)

Leikur 4: Atlético Madrid (Spánn) - Liverpool (England)

Leikur 5: Chelsea (England) - Bayern München (Þýskaland)

Leikur 6: Lyon (Frakkland) - Juventus (Ítalía)

Leikur 7: Tottenham (England) - RB Leipzig (Þýskaland)

Leikur 8: Napoli (Ítalía) - Barcelona (Spánn)

Hér fyrir neðan má sjá textalýsingu frá drættinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×