Viðskipti innlent

Sparisjóðirnir hættir að framkvæma erlendar millifærslur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Stjórnvöld vinna nú að því að uppfylla skilyrði FATF og er vonast til þess að Ísland komist af listanum í febrúar á næsta ári.
Stjórnvöld vinna nú að því að uppfylla skilyrði FATF og er vonast til þess að Ísland komist af listanum í febrúar á næsta ári. Vísir/getty
Sparisjóðirnir munu ekki geta þjónustað viðskiptavini sína með erlendar millifærslur á næstunni. Viðskiptavinum sem þurfa að nýta sér slíka þjónustu er bent á að gera viðeigandi ráðstafanir hjá öðru fjármálafyrirtæki, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Sparisjóðanna. Á meðal ástæðanna eru auknar kröfur í tengslum við reglur um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka en fram­kvæmda­stjóri banka­sviðs innan Kviku banka segir í samtali við Kjarnann að málið tengist þó ekki veru Íslands á hinum svokallaða gráa lista.

Í tilkynningu Sparisjóðanna segir að samstarfsaðili sparisjóðanna geti ekki lengur veitt þessa þjónustu vegna krafna frá erlendum samstarfsaðila hans. Þá hafi Íslenskir bankar ekki treyst sér til að veita sparisjóðnum þessa þjónustu vegna krafna frá samstarfsaðilum sínum erlendis.

„Erlendir samstarfsaðilar íslensku bankanna hafa nú útilokað slíkt samstarf vegna aukinna krafna í tengslum við reglur um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Vonast er til þess að þetta verði tímabundið ástand og að sparisjóðirnir geti aftur veitt ofangreinda þjónustu áður en langt um líður,“ segir í tilkynningu.

Bjarni Benediktsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir komu á fund efnahags- og viðskiptanefndar í lok október til að ræða veru Íslands á gráum lista.Vísir/Vilhelm
Þannig verður ekki hægt að millifæra eða greiða til erlendra aðila eftir 6. desember 2019. Þá verður ekki hægt að móttaka greiðslur eða millifærslur frá erlendum aðilum eftir 13. desember 2019. Hið sama gildir um millifærslur á erlendum gjaldmiðli milli banka innanlands þar sem þær greiðslur fara í gegnum erlenda greiðslumiðlun.

Þessi þjónustuskerðing er ekki sögð munu hafa áhrif á aðra þjónustu sparisjóðanna. Áfram verður til að mynda hægt að kaupa erlendan gjaldeyri, stofna gjaldeyrisreikninga og framkvæma innlendar og erlendar greiðslur með greiðslukortum. Í tilkynningu biðjast sparisjóðirnir afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kunni að valda.

Sparisjóðirnir sem starfa undir vörumerkinu Sparisjóðurinn, og hér um ræðir, eru sparisjóðir Austurlands, Suður-Þingeyinga, Strandamanna og Höfðhverfinga.

Tengist ekki gráa listanum

Í frétt Kjarnans um málið segir að Kvika banki hafi hingað til séð um erlenda greiðslu­miðlun fyrir spari­sjóð­ina en nýlega sagt upp sam­starf­inu vegna kröfu mót­að­ila bank­ans erlend­is.

Þá er haft eftir Magnúsi Inga Einarssyni, fram­kvæmda­stjóri banka­sviðs innan Kviku banka, að málið teng­ist ekki veru Íslands á gráum lista FAT­F eða nýrra reglu­gerða vegna pen­inga­þvætt­is. Kvika hafi þurft að segja upp sam­starf­inu við spari­sjóð­ina vegna breytts fyr­ir­komu­lags evr­u-greiðslna í Evr­ópu.

Í tilkynningu sjóðanna er, eins og áður sagði, vísað í auknar kröfur um varnir gegn peningaþvætti. Ísland komst í október á gráan lista samtakanna Financial Action Task Force (FATF) yfir ríki sem hafa ekki nægar slíkar varnir.

Þegar hafa erlend verðbréfafyrirtæki slitið viðskiptasamböndum við Íslendinga og lokað verðbréfa­reikningum þeirra vegna veru Íslands á gráa listanum. Fyrirtækin eiga það sameiginlegt að vera í viðskiptum við bandaríska uppgjörsfyrirtækið Apex Clearing Corporation.

Stjórnvöld vinna nú að því að uppfylla skilyrði FATF og er vonast til þess að Ísland komist af listanum í febrúar á næsta ári. Þegar greint var frá því að Ísland gæti farið á gráa listann var lagt mat á möguleg áhrif. Það var samdóma álit stjórnvalda og erlendra ráðgjafa að áhrifin yrði óveruleg og var hvorki talið að niðurstaðan hefði bein áhrif á almenning né fjármálastöðugleika á Íslandi.

Í fyrri útgáfu fréttarinnar var þessi tímabundna breyting hjá Sparisjóðunum sagt tengjast veru Íslands á gráum lista FATF. Það reyndist ekki rétt og hefur verið leiðrétt.


Tengdar fréttir

Loka reikningum Íslendinga vegna gráa listans

Erlend verðbréfafyrirtæki hafa slitið viðskiptasamböndum við Íslendinga og lokað verðbréfa­reikningum þeirra vegna veru Íslands á gráum lista alþjóðlega hópsins FATF.

Grái listinn ekki steinn í götu Nasdaq á Íslandi

Það að Ísland sé á gráa lista FATF hefur ekki áhrif á innleiðingu Nasdaq verð­bréfamiðstöðvar á nýju uppgjörskerfi sem á að klárast næsta vor. Seðlabankinn segir að upp hafi komið tilvik þar sem greiðslur hafa tafist eða verið stöðvaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×