Bílar

14 fjöleignarhús vildu styrk til uppsetningar hleðslustöðvar

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Í mörgum eldri fjöleignahúsum er erfitt að koma fyrir heimtengingu fyrir hleðslu rafbíla. Þá getur verið gott að fá styrk til slíks.
Í mörgum eldri fjöleignahúsum er erfitt að koma fyrir heimtengingu fyrir hleðslu rafbíla. Þá getur verið gott að fá styrk til slíks. Vísir/Vilhelm
Reykjavíkurborg og Orkuveitan auglýstu fyrr á þessu ári að opnað hefði verið fyrir umsóknir um styrki vegna uppsetninga hleðslustöðva fyrir rafbíla við fjöleignarhús.

14 umsóknir bárust fyrir 1. september, þegar upprunalegur frestur rann út. Einungis níu af þeim voru í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins. Ein umsókn hefur borist efir 1. september og sú umsókn var samþykkt. Samtals hafa 10 umsóknir verið samþykktar. Það sem af er hafa rúmlega 13,5 milljónir verið veittar í styrki.

Gert er ráð fyrir því að 40 milljónir verði settar í sjóðinn árlega og því eru enn eftir rúmar 26 milljónir króna í sjóðnum.

Samkvæmt Jóni Halldóri Jónassyni, upplýsingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg er enn opið fyrir umsóknir. Umsóknir sem berast verða teknar fyrir í þeirri röð sem þær koma inn.

Jöfn dreifing eftir hverfum

Skiptingin milli hverfa er nokkuð jöfn. Það bárust fjórar umsóknir úr póstnúmeri 101, þrjár umsóknir úr 104, ein úr 105, tvær úr 107, ein úr 108, ein úr 109, tvær úr 110 og ein úr 112.

Nánari upplýsingar um styrkina má finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×