Lífið

Æsispennandi rimma sels og mörgæsar

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir eru fáir, ef einhverjir, sem framleiða betri náttúrulífsmyndir en BBC. Sjónvarpsstöðin sannreyndi það svo sannarlega með Planet Earth þáttaröðunum. Nú er BBC búið að birta myndband af æsispennandi rimmu pardussels og mörgæsar.

Myndskeiðið er úr óbirtri þáttaröð BBC sem ber heitið Seven Worlds, One Planet sem fumsýna á á sunnudaginn.

Samhengið er ekki mikið en það er ljóst að mörgæsin þarf að komast á haf út en til þess þarf hún að komast fram hjá selnum, sem um tíma leikur sér að mörgæsinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×