Arnór á skotskónum í sigri Malmö

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Arnór Ingvi hefur verið að spila vel með Malmö
Arnór Ingvi hefur verið að spila vel með Malmö vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason skoraði annað mark Malmö í sigri á AIK í toppslag í sænsku úrvalsdeildinni.

Toppbaráttan í sænsku úrvalsdeildinni er æsispennandi en leikurinn í kvöld var úrslitaleikur um hvort liðið myndi halda sér í baráttunni um titilinn.

Eftir markalausan fyrri hálfleik braut varamaðurinn Anders Christiansen ísinn með marki fyrir Malmö á 78. mínútu.

Á 87. mínútu skoraði íslenski landsliðsmaðurinn svo með marki af stuttu færi eftir sendingu Guillermo Molins.

Það varð lokamark leiksins, Malmö fór með 2-0 sigur og fór þar með allar titilvonir AIK.

Arnór Ingvi spilaði allan leikinn fyrir Malmö og Kolbeinn Sigþórsson gerði slíkt hið sama fyrir AIK.

Djurgården er á toppi deildarinnar með 65 stig en Malmö og Hammarby koma þar á eftir með 62 stig hvor þegar ein umferð er eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira