Viðskipti innlent

Fljótum sofandi á gráan lista yfir lönd hvar peningaþvætti er stundað í stórum stíl

Jakob Bjarnar skrifar
Ísland stefnir nú hraðbyri á lista með löndum á borð við Afganistan, Jemen, Íran, Úganda og fleiri ríkum hvar ætlað er að peningaþvætti sé stundað af miklum móð.
Ísland stefnir nú hraðbyri á lista með löndum á borð við Afganistan, Jemen, Íran, Úganda og fleiri ríkum hvar ætlað er að peningaþvætti sé stundað af miklum móð. Getty/Caspar Benson
Bankamenn óttast að Ísland lendi á gráum lista alþjóðlega framkvæmdahópsins FATF (The Financial Action Task Force) vegna sleðaháttar stjórnvalda í aðgerðum og vörnum gegn peningaþvætti. Þetta hlýtur meðal annars að standa uppá Fjármálaeftirlitið hvers meginhlutverk er að standa vörð um heilbrigði og traust fjármálamarkaðarins.

Í þessu samhengi hefur Eva Hauksdóttir lögfræðingur vakið athygli á því sem hún kallar háðsk gullkorn í stjórnarsáttmálanum:

„Skattrannsóknir verða efldar samhliða því að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að ábyrgari vinnumarkaði. Áframhaldandi áhersla þarf að vera á alþjóðlegt samstarf gegn skattundanskotum og skattsvikum þannig að Ísland skipi sér í fremstu röð ríkja sem berjast gegn skattaskjólum.“

Andvaraleysið algert

En ef marka má FATF eru þetta orðin tóm, andvaraleysið er algert.

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans, sem hefur fjallað ítarlega um peningaþvætti í miklum greinaflokki á sínum miðli, fagnar því að þetta sé loksins komið á dagskrá, staða sem hefur legið fyrir í tæpt eitt og hálft ár; að Ísland hafi varla uppi nokkrar varnir gegn peningaþvætti.

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans hefur lengi talað fyrir daufum eyrum um Ísland og peningaþvætti. Menn eru nú loks að vakna til vitundar um vandann.Vísir/Egill Aðalsteinsson
Þar er staðan ein rjúkandi rúst og stefnir í að Ísland fari á lista yfir ósamvinnuþýð ríki með Afganistan, Jemen, Íran, Úganda og fleirum.

„Það er stórmál – eitt það stærsta – að svona hafi staðan verið. Hér hafa meira að segja verið settar upp leiðir af Seðlabankanum til að þvo peninga og veita þeim heilbrigðisvottorð,“ segir Þórður Snær á Facebooksíðu sinni.

Ísland risavaxin peningaþvottastöð

Hann segir jafnframt fáa hafa sýnt málinu áhuga, enginn stjórnmálamaður tekið málið föstum tökum og enginn virtist ætla að gera neitt í þessu, ekki fyrr en FATF hótaði að setja Ísland á listann, sem myndi þá hafa t.d. áhrif á getu banka til að fjármagna sig alþjóðlega.

Enginn hefur enn kallað eftir því að það verði rannsakað í þaula hvort að Ísland hafi verið risavaxin peningaþvottastöð.

Björn Leví Gunnarsson þingmaður staðfestir þetta áhuga- og andvaraleysi. „Við fáum nákvæmlega núll áhuga þegar við spyrjum um þessi mál á þingi. Það mætir kannski einhver á stuttan fund þar sem svör við spurningum fara alla hringi sem hægt er að hugsa sér og svo klárast tíminn og ekkert ... gerist.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×