Minnisvarði í djammsögunni deyr drottni sínum Jakob Bjarnar skrifar 10. október 2019 09:00 Jóel Briem segir að margar ástæður fyrir því að reksturinn var orðinn vonlítill. visir/Vilhelm
Boston við Laugaveg í Reykjavík hefur verið lokað. Boston hefur verið starfrækt árum saman og má heita sögufrægur staður. Það vill oft gleymast að skemmtistaðir, krár og barir geta og hafa gegnt mikilvægu menningarlegu hlutverki í listasögunni. Og svo er með Boston. Þarna hafa fjölmargir þekktir áhrifa- og listamenn komið fram og svo skemmt sér. Þekktastur úr þeim hópi hlýtur að vera Björk sem þarna þeytti skífum og steig dans. „Monjúment í djammsögunni? Jájá, þetta var voðalega skemmtilegt,“ segir Sigríður Guðlaugsdóttir, sem betur er þekkt sem Sigga kennd við veitingastaðinn Sirkus, sem nú rekur Sirkus endurreistan á Seyðisfirði. En, hún hefur einnig verið kennd við Boston og ein þeirra sem átti hlut í rekstrinum. „Þetta var VIP-staður, eða í byrjun. Björk var þarna fastagestur og DJ-aði oft. Já, það voru eiginlega allir þarna í byrjun, borgarstjórar og fleiri,“ segir Sigga og hlær. Þarna var lengi vel staðið fyrir ýmsum skemmtilegum uppákomum.Ekki vantaði fjörið á Boston.„En maður nennir þessu ekki endalaust. Í tvö ár var verið að byggja hótel þarna við hliðina og heyrðist ekki milli borða. Þetta er ekki hægt. Svo há leiga, það kemst enginn til þín, ladída. Þetta er mjög mikið rugl í Reykjavík. Dásamlegt að vera á Seyðisfirði,“ segir Sigga. Sá sem hefur undanfarin fjögur árin rekið staðinn er Jóel Briem, sonur Siggu. Hann mun sakna Boston og telur víst að svo sé um fleiri. „Það er ekkert að því að eiga góðar minningar,“ segir Jóel. En, það hafi því miður ekki verið um neitt annað að ræða en loka, róðurinn var orðinn of þungur. Sjálfur rekur Jóel nú meðal annars tvo staði úti í Færeyjum.Leigan rauk án fyrirvara upp úr öllu valdi Jóel hefur verið lengi viðloðandi veitingarekstur. Byrjaði að starfa í geiranum aðeins átján ára gamall og fór sjálfur út í rekstur fljótlega upp úr tvítugu.Boston við Laugaveg. Nú er búið að loka staðnum og víst að margir munu sakna hans.„Fyrir þremur árum hækkaði leigan um 85 prósent eða þar um bil. Fór úr 480 þúsund kalli í 800 þúsund kall. Með hita og rafmagni, en húsið er svo gamalt, fór kostnaður í 960 á mánuði. Þá hækkaði launakostnaður snögglega,“ segir Jóel. Og þegar allt þetta lagðist saman var þetta orðinn þungur róður. Jóel hefur svipaða sögu að segja og margir sem fást við rekstur við Laugaveginn. Leigan er að ríða mörgum á slig auk þess sem ýmsir kvarta undan því að aðgengi sé og hafi lengi verið í ólestri. Og þegar við bætist erfið samkeppni frá hótelrekstri er þetta orðin brekka. „Þetta var mikið stress og álag. Það voru kannski að koma mánaðarmót og við vissum ekki hvort við næðum endum saman,“ segir Jóel. Miklar áhyggjur fylgdu og samkeppni. Hann segir að það virtist ætla að létta til þegar yfirlýsingar frá borginni komu þess efnis að ekki yrðu gefin út fleiri veitingaleyfi. Þetta væri orðið svo mikið.Erfið samkeppni við hótelin „Það var bara jákvætt, að búið væri að setja bremsu á þetta enda komið út í rugl. En tveimur mánuðum síðar var byrjað að byggja hótel og svo annað hótel. Þetta hefur verið algjört bull.“Jóel segir það ekkert spaug að halda rekstri á floti í miðborginni.visir/vilhelmOg það er ekki hægt að standa í samkeppni við hótel sem er með eldhús sem kostaði kannski hundruð milljóna. „Við vorum með „Happy hour“ frá fjögur til átta. En, þá var hótelið kannski komið með happy hour til tíu. Og önnur hótel komin með „happy hour“ frá 12 til átta. Þetta var vonlaust og ég finn til með veitingafólki sem reynir að standa sig. Það eina sem kemur í fréttum er að bjórinn sé svo dýr,“ segir Jóel en bendir á að þar sé til margs að líta. Ölgerðin hafi hækkað verðið frá sér. Og áfengisgjöldin hækka og hækka,“ segir Jóel og telur upp ýmis atriði sem saman komin eru ekki hagfelld þeim sem vilja standa í slíkum rekstri.Launahækkanir þungar fyrir rekstraraðila „Og launin hækka en enginn vill borga meira fyrir hlutina. Það er dýrt að vera með starfsfólk, svo að kosta hljómsveitir og viðburðir. Við erum með starfsfólk á nóttinni en ekki daginn. Eins og hótelin. Sem eru með fólk á 1600 hundruð kall á tímann. Um leið og klukkan er orðin sex lendum við í öðrum launaflokki. Eftir miðnætti í þeim þriðja. Við getum ekki unnið með dagtaxta í þessum bransa. Enginn að fara að koma og fá sér bjór nema kannski Jói á hjólinu.“Boston. Staðurinn heyrir nú sögunni til.Jóel segir að eitt og annað hafa komið til sem gerði þeim erfitt fyrir með að halda Boston gangandi. Eigandi hússins hafi lengi ætlað sér að selja það og ekki viljað gera leigusamning nema til tveggja ára, með sex mánaða uppsagnarákvæði ef til sölu kæmi. Þannig að de facto væri þetta ekki nema hálfs árs leigusamningur.Uggvænleg þróun í miðborginni Jóel segir forsendu þess að geta staðið í veitingarekstri vera öruggur leigusamningur. „Þú þarft að geta horft fram í tímann og skipulagt þig þannig, að lágmarki fjögur ár fram í tímann. Við vorum komin út í horn þegar við fengum óvænta hækkun á leigu í staðinn fyrir lengingu á leigusamningi. Það gerði útslagið.“ Jóel segist verðmæti veitingastaða einkum liggja í leigusamningnum. Hann segist finna til með þeim sem eru með rekstur í miðborginni og eigi ekki sitt húsnæði. Að þeim sé sótt úr öllum áttum. „Litlu kaupmennirnir sem hafa gert þessa borg að því sem hún er, eða var, það er búið að bola þeim í burtu.“ Jóel, sem unir hag sínum vel úti í Færeyjum og svo á Seyðisfirði, segir alla hluti taka enda en að sama skapi sé þróunin uggvænleg. „Ég þekki mikið af kláru veitingafólki sem ætti að vera í rekstri en er nú komið út úr geiranum.“
Áfengi og tóbak Borgarstjórn Reykjavík Stjórnsýsla Veitingastaðir Tengdar fréttir Sirkus fær framhaldslíf á Seyðisfirði Skemmtistaðurinn Sirkus verður opnaður á ný og nánast í upprunalegri mynd á Seyðisfirði innan tíðar. Græjunar, barborðið og stólarnir frá gamla staðnum sitja í gámi við hafnarbakkann. 1. maí 2018 20:00 Mest lesið Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Samstarf Wise og Þekking orðin eitt Viðskipti innlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Viðskipti innlent Nýr CLE 53 frá Mercedes-AMG frumsýndur á laugardag Samstarf Sögðu upp 82 starfsmönnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt AGS leggur til skattahækkanir Gerður ráðin til BBA//Fjeldco Þjóðin hafi tekið rétta ákvörðun í Icesave málinu Úr tveggja milljarða tekjum í fimm en töpuðu þrjátíu Sjá meira
Sirkus fær framhaldslíf á Seyðisfirði Skemmtistaðurinn Sirkus verður opnaður á ný og nánast í upprunalegri mynd á Seyðisfirði innan tíðar. Græjunar, barborðið og stólarnir frá gamla staðnum sitja í gámi við hafnarbakkann. 1. maí 2018 20:00