Íslenski boltinn

Alfons leikur með Breiðablik út tímabilið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alfons er á leið aftur í græna búninginn.
Alfons er á leið aftur í græna búninginn. vísir/ernir
Breiðablik fékk í dag liðstyrk en bakvörðurinn Alfons Sampsted mun leika með uppeldisfélaginu á láni út leiktíðina.

Alfons kemur á láni frá Norrköping en hann gekk í raðir sænska liðsins árið 2017 þar sem honum hefur gengið illa að fá tækifæri með aðalliði félagsins.







Hann var lánaður á síðustu leiktíð til Landskrona í sænsku B-deildinni þar sem hann lék við góðan orðstír en hefur ekki fengið tækifæri á þessari leiktíð með Norrköping.

Alfons getur leikið sinn fyrsta leik á þriðjudaginn er Breiðablik mætir KA á heimavelli en þeir grænklæddu eru í öðru sæti Pepsi Max-deildarinnar og eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×