Íslenski boltinn

HK fær varnarmann á láni frá Haukum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alexander Freyr (nr. 27) hefur leikið með Haukum nær allan sinn feril.
Alexander Freyr (nr. 27) hefur leikið með Haukum nær allan sinn feril. vísir/vilhelm
HK hefur fengið varnarmanninn Alexander Frey Sindrason á láni frá Haukum út tímabilið.

Alexander, sem verður 26 ára á miðvikudaginn, hefur lengst af ferilsins leikið með Haukum.

Hann missti af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla en hefur leikið 14 leiki í deild og bikar með Haukum í sumar.

Alexander er eini leikmaðurinn sem HK hefur fengið til sín í júlíglugganum.

Leikmannahópur HK er ekki sá stærsti og þá fara nokkrir leikmenn liðsins til náms erlendis á næstu vikum.

HK tekur á móti Stjörnunni í 14. umferð Pepsi Max-deild karla annað kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×