Íslenski boltinn

Fyrsti sigur Ólafsvíkinga síðan 13. júní

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mikilvæg þrjú stig hjá Ejub og félögum.
Mikilvæg þrjú stig hjá Ejub og félögum. vísir/
Víkingur Ólafsvík vann 2-0 sigur á Aftureldingu í Ólafsvík í kvöld. Sigurinn var fyrsti sigur Ólafsvíkur í Inkasso-deildinni síðan 13. júní.

Harley Willard kom Ólafsvíkingum yfir á 54. mínútu en átta mínútum síðar tvöfaldaði Sallieu Capay Tarawallie. Lokatölur 2-0.

Víkingur Ólafsvík er í fjórða sæti deildarinnar með sautján stig, fimm stigum frá toppliði Fjölnis, en Fjölnir á þó leik til góða.

Afturelding er í tíunda sæti deildarinnar með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×