Golf

Afar sérstakt að spila í þrumuveðri

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Guðmundur Ágúst slær hér af teig í Grafarholtinu þar sem Íslandsmótið fer fram í ágúst.
Guðmundur Ágúst slær hér af teig í Grafarholtinu þar sem Íslandsmótið fer fram í ágúst. Mynd/GSÍmyndir.net/Seth
Guðmundur Ágúst Kristjánsson sem leikur fyrir hönd GR er næststigahæstur á Ecco Nordic Tour mótaröðinni, sterkustu mótaröð Skandinavíu í golfi, eftir að hafa unnið annað mót sitt á árinu á dögunum. Hann varð fyrr á þessu ári annar íslenski kylfingurinn sem nær að vinna mót á þessari mótaröð á eftir Axel Bóassyni og bætti við öðrum sigri á dögunum á PGA Championship / Ingelsta Kalkon, atvinnumótinu sem fór fram á Österlens-vellinum í Svíþjóð.

Guðmundur er búinn að koma sér í vænlega stöðu í öðru sæti á stigalistanum þar sem fimm efstu kylfingarnir í lok tímabils öðlast þátttökurétt á Áskorendamótaröð Evrópu, næststerkustu mótaröð Evrópu, á næsta tímabili. Þá á hann annan möguleika á að tryggja sér þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni fyrir næsta tímabil með því að vinna eitt mót til viðbótar í Skandinavíu.

Guðmundur var á leiðinni aftur til Íslands í stutt stopp þegar Fréttablaðið náði á hann eftir annað mót þar sem hann náði sér ekki jafn vel á strik enda aðeins þrír dagar á milli móta.

„Þetta er búið að ganga mjög vel til þessa á árinu, þessir tveir sigrar telja ansi mikið þegar kemur að stigalistanum og verðlaunafénu,“ segir Guðmundur sem hefur bætt högglengdina og það er að skila sér.

„Það er minni stöðugleiki í spilamennskunni í ár en undanfarin ár en ég er að slá lengra. Ég hef unnið með þjálfaranum mínum, Arnari Má, sem á allt lof skilið fyrir vinnuna sína. Ég slæ talsvert lengra en í fyrra og á auðveldara með að stýra boltafluginu í vindinum sem gefur mér fleiri færi á fuglum,“ segir Guðmundur aðspurður út í muninn á milli ára.

Ef Guðmundi tekst að vinna eitt mót til viðbótar getur hann fært sig yfir á Áskorendamótaröðina.

„Það er ekki bara næsta tímabil, ef mér tekst að vinna eitt mót til viðbótar fæ ég þátttökurétt það sem eftir lifir tímabilsins ásamt því að komast ofar á forgangslistann fyrir mótin á næsta tímabili.“

Guðmundur Ágúst tók þátt í móti á Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu, á dögunum.

„Þetta var annað mótið mitt á Evrópumótaröðinni og ég fann aftur strax að þetta var stigið sem maður vill vera á. Það er annar gæðastimpill þar.“

Undir lok mótsins sem Guðmundur vann á dögunum komu þrumur og eldingar þegar hann var að klára síðustu holuna. Hann deildi efsta sæti með Christian Bæch Christinsen í lok móts og voru þeir því sendir út í bráðabana til að skera úr um sigurvegara. Eftir bráðabanann kom hellidemba og völlurinn var á floti og var ákveðið að þeir yrðu úrskurðaðir sameiginlegir sigurvegarar.

„Það var afar sérstakt, við spiluðum þrjár holur í bráðabana þegar það voru eldingar. Maður hélt að það yrði engin áhætta tekin og þetta var fullnálægt manni fyrir minn smekk,“ segir hann hlæjandi og heldur áfram:

„Maður er svo sem vanur hinum ýmsu truflunum og það þurfti bara að ná upp einbeitingu þegar kom að höggunum þó að maður hafi orðið smeykur á milli högga. Þegar það var allt jafnt eftir bráðabanann kom steypiregn og völlurinn var á floti og þá var ákveðið að blása þetta af og úrskurðað að við ynnum báðir mótið.“

Íslandsmótið í höggleik fer fram í Grafarholtinu og segist hann stefna á að gera atlögu að fyrsta Íslandsmeistaratitlinum á heimavellinum.

„Það er á dagskránni að koma heim og taka þátt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×