Viðskipti innlent

Upplýsingar bætast við titilinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gunnlaugur var tæknistjóri en er nú upplýsingatæknistjóri hjá Origo.
Gunnlaugur var tæknistjóri en er nú upplýsingatæknistjóri hjá Origo. Aðsend
Gunnlaugur Th. Einarsson hefur verið ráðinn upplýsingatæknistjóri Origo. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Upplýsingatæknistjóri hefur snertifleti við alla starfssemi Origo, þvert á svið og stjórnskipulag. Hann starfar náið með fjölda upplýsingatæknisérfræðinga við að endurmeta viðskiptaferla, innleiða stefnu og markmið fyrirtækisins í tæknimálum og kortleggja framtíðarsýn þess,“ segir í tilkynningunni.

Gunnlaugur, sem er með BS í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands, hóf störf hjá forvera Origo, Nýherja, árið 2001. Nú síðast hefur hann starfað sem tæknistjóri hjá viðskiptalausnum Origo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×