Lennon: Valur gerði mistök í leikmannakaupum og gerir þau sennilega aftur í júlí Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. júní 2019 20:00 Lennon fagnar marki gegn Val fyrr í sumar. vísir/vilhelm
Steven Lennon, framherji FH, furðar sig á leikmannakaupum Vals fyrir tímabilið. Íslandsmeistararnir eru með fjögur stig á botni Pepsi Max-deildar karla eftir sjö umferðir. „Þetta var skrítið. Ég get skilið af hverju var samið við þá. Þetta eru góðir leikmenn en þurftu þeir að fá þá? Ég held ekki,“ sagði Lennon í samtali við Hörð Magnússon í Sportpakkanum. Skotinn segir að Valsmenn hafi farið fram úr sér á félagaskiptamarkaðnum í vetur. „Þeir þurftu sennilega 3-4 leikmenn til að auka breiddina í liðinu. Þegar þú átt mikið af peningum, eins og þetta félag, hættir mönnum til að fara yfir um og eyða peningum að ástæðulausu. Þú heldur að þú sért að styrkja liðið en í raun er þetta vandamál. Maður sér þetta hjá mörgum félögum sem eiga peninga,“ sagði Lennon. „Þurfa lið á Íslandi 25 leikmenn? Ég held ekki. Það má segja að það sé fyrir Evrópuleikina en þeir spila sennilega með sömu leikmennina þar. Að mínu mati þurftu þeir 3-4 leikmenn, halda áfram því sem þeir hafa verið að gera og þá væru þeir aftur í baráttunni. Það er enn mikið eftir svo þeir gætu komið til baka. En ég held að þeir hafi gert mistök og gera þau væntanlega aftur í júlí.“ Lennon hefur glímt við meiðsli og ekki enn byrjað leik á tímabilinu. Hann gæti hins vegar verið í byrjunarliði FH gegn Stjörnunni annað kvöld. Innslagið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Hannes meiddur og missir af leiknum við ÍBV Hannes Þór Halldórsson er meiddur og verður ekki með Val gegn ÍBV í Pepsi Max deild karla á laugardag. Þess í stað heldur hann út til Ítalíu og verður viðstaddur brúðkaup Gylfa Þórs Sigurðssonar. 13. júní 2019 16:18 Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Fótbolti Fleiri fréttir „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Sjá meira
Hannes meiddur og missir af leiknum við ÍBV Hannes Þór Halldórsson er meiddur og verður ekki með Val gegn ÍBV í Pepsi Max deild karla á laugardag. Þess í stað heldur hann út til Ítalíu og verður viðstaddur brúðkaup Gylfa Þórs Sigurðssonar. 13. júní 2019 16:18