Íslenski boltinn

ÍBV sló bikarmeistarana út í framlengingu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Eyjamenn fóru með sigur á Hásteinsvelli
Eyjamenn fóru með sigur á Hásteinsvelli vísir/ernir
Óskar Elías Zoega Óskarsson var hetja ÍBV í framlengingu gegn ríkjandi bikarmeisturum Stjörnunnar þegar liðin mættust í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Hásteinsvelli í dag.

Það var ekkert mark skorað í venjulegum leiktíma í Vestmannaeyjum. Leikurinn var frekar tíðindalítill en Stjörnumenn fengu þó dauðafæri undir lok fyrri hálfleiks.

Stjarnan byrjaði framlenginguna af krafti en fékk ekkert upp úr krafsinu.

Langþráða markið kom loks á 114. mínútu þegar Óskar fygldi eftir skoti frá Eyþóri Orra Ómarssyni og kom heimamönnum yfir.

Stjörnumenn gátu ekki svarað áður en leiktíminn var úti og bikarmeistararnir falla á fyrstu hindrun, 1-0 sigur ÍBV raunin.

ÍBV verður í pottinum þegar dregið verður til 16-liða úrslita en Stjarnan er úr leik.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×