Formúla 1

Upphitun: Ferrari verður að stoppa Mercedes

Bragi Þórðarson skrifar
Mercedes hefur verið óstöðvandi það sem af er ári.
Mercedes hefur verið óstöðvandi það sem af er ári. Getty
Mercedes er með fullt hús stiga í keppni bílasmiða eftir fyrstu fjórar umferðirnar í Formúlu 1. Aldrei hefur lið byrjað tímabil jafn vel og er þýski bílaframleiðandinn kominn með 74 stiga forskot í keppni bílasmiða.

Í prófunum fyrir tímabilið leit út fyrir að Ferrari bílarnir væru þeir hröðustu en annað kom á daginn í fyrstu keppni.

Í annari keppninni var Charles Leclerc með örugga forustu þegar að vélarbilun kom upp í Ferrari bíl hans. Síðan þá hefur liðið sýnt mikinn hraða í æfingum en hraði bílanna í keppnunum sjálfum er ekki nægilega góður.

Prófanir fyrir tímabilið fóru fram á Katalúníu brautinni sem keppt verður á um helgina. Ferrari vonast því eftir góðum úrslitum en liðið mun mæta með uppfærða vél til Spánar.

Honda uppfærði einnig vélarnar í Red Bull bílunum fyrir síðustu keppni og breytingarnar lofa góðu fyrir Max Verstappen og Pierre Gasly.

 

Samstarf Honda og Red Bull lofar góðuGetty
Dekkjastopp verða mikilvæg á sunnudaginn

Brautin á Spáni reynir mikið á bílana og dekkin, því má búast við að flest lið muni fara með bíla sína í tvígang inn á þjónustusvæðið í dekkjaskipti.

Lewis Hamilton hefur unnið spænska kappaksturinn síðastliðin tvö ár en brautin hefur ætíð verið góð fyrir Bretann.

Miðað við síðustu keppnir má búast við því að helsti andstæðingur Hamilton verði liðsfélagi hans, Valtteri Bottas. Finninn leiðir heimsmeistaramótið með einu stigi en báðir hafa þeir unnið tvær keppnir í ár.

Kappaksturinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport ásamt tímatökum og æfingu. Ræst verður af stað í keppnina klukkan 13 á sunnudaginn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×