Eiginkona Ku Klux Klan-leiðtoga játaði loks á sig morðið Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. apríl 2019 12:27 Malissa Ancona og sonur hennar, Paul Jinkerson jr, voru bæði ákærð fyrir morðið á sínum tíma. Mynd/lögregla í Bandaríkjunum
Malissa Ancona, eiginkona Ku Klux Klan-leiðtogans Franks Ancona, játaði að hafa skotið hann til bana fyrir tveimur árum. Malissa var dæmd í lífstíðarfangelsi í Missouri-ríki í Bandaríkjunum í gær en hún hélt því áður fram að sonur hennar hefði framið morðið.Sjá einnig: KKK-leiðtogi fannst látinn Fjölsylda á veiðum fann lík Franks á árbakka í Missouri í febrúar árið 2017. Hann var leiðtogi (e. imperial wizard) í samtökunum Traditionalist Knights of the Ku Klux Klan, sem halda því fram að „hvíti kynstofninn“ hafi yfirburði yfir aðra. Malissa og sonur hennar, Paul Jinkerson Jr., voru í kjölfarið ákærð fyrir morðið. Var þeim gefið að sök að hafa skotið Frank þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu á heimili sínu í Leadwood, um 110 kílómetrum suður af St. Louis. Malissa hélt því fram fyrir dómi að sonur hennar hefði framið morðið en dró þá frásögn sína til baka í gær. Enn á eftir að rétta í máli Jinkersons. „Ég skaut báðum skotunum sem urðu eiginmanni mínum að bana,“ sagði Malissa við dómara í gær. Hún játaði jafnframt að hafa þvegið veggi í herberginu þar sem hún skaut Frank á sínum tíma, hent rúmfötum í ruslið og að lokum varpað líki hans í ána.
Bandaríkin Tengdar fréttir Eiginkona og stjúpsonur KKK-leiðtogans ákærð fyrir morðið Ku Klux Klan-leiðtoginn Frank Ancona fannst látinn um helgina í Missouri. 14. febrúar 2017 08:36 KKK-leiðtogi fannst látinn Frank Ancona hafði verið saknað síðan á föstudag. 12. febrúar 2017 22:44 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira
Eiginkona og stjúpsonur KKK-leiðtogans ákærð fyrir morðið Ku Klux Klan-leiðtoginn Frank Ancona fannst látinn um helgina í Missouri. 14. febrúar 2017 08:36