Dalvík/Reynir sló Þór úr bikarnum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. apríl 2019 16:19 Dalvík/Reynir fór upp úr þriðju deildinni síðasta haust. Í dag slógu þeir út lið sem var í toppbaráttu í Inkassodeildinni allt síðasta sumar. mynd/dalvík/reynir
Dalvík/Reynir gerði sér lítið fyrir og sló nágranna sína í Þór út úr Mjólkurbikar karla. Fjárðabyggð og Vestri tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitunum. Dalvík/Reynir, sem spilar í annari deild, gerði sér ferð í Bogann á Akureyri og mætti Inkassodeildarliði Þórs. Þórsarar áttu fyrsta orðið þegar Jónas Björgvin Sigurbergsson skoraði á 17. mínútu. Gestirnir voru hins vegar ekki lengi að jafna metin, Pálmi Heiðmann Birgisson gerði það fjórum mínútum seinna. Orri Sigurjónsson sá til þess að Þór fór með forystu inn í hálfleikinn með marki á síðustu mínútu venjulegs leiktíma í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik jafnaði Númi Kárason aftur fyrir Dalvíkurmenn og það var svo Borja Lopez Laguna sem tryggði gestunum sigurinn, lokatölur 3-2 fyrir Dalvík/Reyni. Fyrir austan mættust Höttur/Huginn og Fjarðabyggð á Fellavelli. Fjarðabyggð spilar í annari deild en Höttur/Huginn í þeirri þriðju. Það stefndi allt í framlengingu eftir markalausan leik en Guðjón Máni Magnússon vildi ekki spila lengur og í uppbótartíma seinni hálfleiks setti hann tvö mörk og tryggði Fjarðabyggð 2-0 sigur. Vestri varð þriðja annarar deildar liðið í dag til þess að tryggja sig áfram í næstu umferð með 3-1 sigri á Kára. Páll Sindri Einarsson kom Vestra á bragðið á 18. mínútu og Pétur Bjarnason bætti tveimur mörkum við áður en flautað var til hálfleiks. Í seinni hálfleik minnkaði Andri Júlíusson muninn fyrir Kára með marki úr vítaspyrnu en nær komust gestirnir ekki og 3-1 sigur Vestra raunin. Magni lenti ekki í vandræðum með KF og vann öruggan 4-0 sigur. Aðeins einn leikur er eftir í 2. umferð Mjólkurbikarsins, það er viðureign Völsungs og Tindastóls sem fer fram á Húsavíkurvelli á miðvikudag. Dregið verður í 32-liða úrslitin í næstu viku. Úrslit og upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Mjólkurbikarinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira