Bíó og sjónvarp

Amazon biðst afsökunar á Game of Thrones leka

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ekki er víst að Jon Snow yrði ánægður með Amazon vegna lekans. Forsvarsmenn fyrirtækisins þurfa þó ekki að hafa mikla áhyggjur af honum, þar sem hann er ekki til í alvöru.
Ekki er víst að Jon Snow yrði ánægður með Amazon vegna lekans. Forsvarsmenn fyrirtækisins þurfa þó ekki að hafa mikla áhyggjur af honum, þar sem hann er ekki til í alvöru.
Bandaríski netverslunarrisinn Amazon hefur beðist afsökunar á því að hafa lekið öðrum þætti lokaþáttaraðar hinna geysivinsælu sjónvarpsþátta Game of Thrones, nokkrum klukkustundum áður en þátturinn var frumsýndur. Fyrirtækið segir að rekja megi lekann til kerfisvillu hjá streymisveitu fyrirtækisins, Amazon Prime Video.

„Við hörmum það að um stutta stund var áskrifendum að Amazon Prime í Þýskalandi veittur aðgangur að öðrum þætti áttundu þáttaraðar Game of Thrones. Þetta var kerfisvilla sem hefur verið leiðrétt,“ sagði talsmaður Amazon um málið.

Þrátt fyrir að þættinum hafi snögglega verið kippt út af streymisveitunni eftir að upp komst um villuna náðu þó nokkrir aðdáendur þáttanna að horfa á þáttinn í heild sinni, áður en mistökin voru leiðrétt.





Þetta er önnur vikan í röð þar sem Game of Thrones þáttur hefur birst ótímabært á Internetinu, það er, áður en að frumsýningu var komið.

Í síðustu viku gátu áskrifendur að streymisveitu samskiptafyrirtækisins AT&T, DirectTV Now, barið fyrsta þátt áttundu þáttaraðar augum nokkrum klukkustundum áður en þátturinn var frumsýndur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×