Erlent

Bann við fóstureyðingum ekki í samræmi við stjórnarskrá Suður-Kóreu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Moon Jae-in er forseti Suður-Kóreu en nú þarf að breyta lögum um fóstureyðingar í landinu.
Moon Jae-in er forseti Suður-Kóreu en nú þarf að breyta lögum um fóstureyðingar í landinu. vísir/getty
Stjórnarskrárdómstóll Suður-Kóreu komst að því í morgun að lög sem banna fóstureyðingar í landinu væru í trássi við stjórnarskránna og því þarf að breyta þeim fyrir árslok 2020.

Lögin voru sett árið 1953 og samkvæmt þeim eiga konur sem fara í fóstureyðingu yfir höfði sér sektir eða fangelsisdóma, nema í undantekningartilfellum.

Suður-Kórea er eitt af fáum þróuðum ríkjum heimsins þar sem litið er á fóstureyðingu sem glæp en skoðanakannanir benda til að rúmur helmingur landsmanna vilji afnema lögin.

Stjórnarskrárdómstóllinn tók lögin fyrir að beiðni læknis, sem hélt því fram að bannið setji konur í hættu og skerði réttindi þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×