Lífið

Smekklegt Sigvaldaraðhús í Kópavogi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flotað gólf á aðalhæðinni.
Flotað gólf á aðalhæðinni.
Í suðurhlíðum Hrauntungu í Kópavogi stendur reisulegt raðhús með fjörutíu fermetra svölum og er það á sölu á 86 milljónir.

Um er að ræða 215 fermetra raðhús á besta stað en húsið er eftir arkitektinn Sigvalda Thordarson en hans hönnun þykir virkilega falleg.

Húsið var byggt árið 1978 og eru þar sex svefnherbergi auk þess sem ósamþykkt aukaíbúð er í kjallaranum.

Eigendur hafa endurnýjað margt og mikið á síðustu árum og má meðal annars sjá heitan pott á ógnarstórum svölum.

Hér að neðan má sjá myndir af eigninni:

Eldhúsið og borðstofan eru samliggjandi í glæsilegu rými.
Eldhúsið er nýtt og virkilega vel heppnað.
Baðherbergið á aðalhæðinni er nýuppgert.
Alls eru sex svefnherbergi í aðalíbúðinni.
Rúmgott og bjart hjónaherbergi.
Svalirnar eru fjörutíu fermetrar að stærð er þar er heitur pottur.
Aukaíbúðin er mjög smekkleg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×