Lífið

Svívirðilegustu atriðin úr nýrri heimildarmynd um Fyre Festival

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Billy McFarland, einn aðalskipuleggjenda Fyre Festival, sést hvítklæddur lengst til vinstri á mynd. Rapparinn Ja Rule, viðskiptafélagi hans, er dökkklæddur fyrir miðju.
Billy McFarland, einn aðalskipuleggjenda Fyre Festival, sést hvítklæddur lengst til vinstri á mynd. Rapparinn Ja Rule, viðskiptafélagi hans, er dökkklæddur fyrir miðju. Getty/Patrick McMullan
Tvær heimildarmyndir um hamfarahátíðina Fyre Festival komu út í síðustu viku, önnur á vegum Netflix og hin úr smiðju Hulu. Báðar myndirnar varpa nýju ljósi á lygilega viðskiptahætti skipuleggjenda, og þá einkum höfuðpaursins, Billy McFarland. Hér verður farið yfir nokkur af helstu atriðunum úr Netflix-heimildarmyndinni, sum jafnvel svívirðileg, sem vakið hefur mikla athygli og hneykslan á samfélagsmiðlum síðustu daga.

Innantóm samfélagsmiðlaherferð auglýsti lúxus

Fyre Festival var haldin, og nær blásin af í sömu andrá, á Exuma-eyju í Bahama-eyjaklasanum í lok apríl árið 2017. Hátíðinni voru gerð greinargóð skil í fjölmiðlum á sínum tíma en þyrnum stráður aðdragandinn og skelfilegur aðbúnaður hátíðargesta vakti heimsathygli. Þannig líktu gestirnir ástandinu á eyjunni við Hungurleikana en miðar á hátíðina, sem var auglýst sem lúxustónlistarhátíð í umfangsmikilli en innantómri samfélagsmiðlaherferð, kostuðu hundruð þúsunda króna.

Helsti skipuleggjandi Fyre Festival, Billy McFarland, var dæmdur í sex ára fangelsi vegna hátíðarinnar í október síðastliðnum og hefur öðrum skipuleggjendum verið gert að reiða fram milljónir Bandaríkjadala í skaðabætur. Í myndbandinu hér að ofan má sjá dæmi um kynningarefni fyrir hátíðina.

Hér á eftir verður farið yfir nokkur af „svívirðilegustu“ atriðunum úr Netflix-heimildarmyndinni, þar eð sú á Hulu er ekki aðgengileg íslenskum áhorfendum. Myndin varpar ljósi á alvarlega misbresti við skipulagningu hátíðarinnar og ótrúlega viðskiptahætti skipuleggjenda. Stuðst er við samantektir bandarísku miðlanna Variety og The Week.

Þrjátíu milljónir fyrir eina færslu og hótanir heimamanna

Fyrirsæturnar Kendall Jenner og Bella Hadid eru á meðal þeirra áhrifavalda sem auglýstu Fyre Festival á samfélagsmiðlum sínum.Getty/James Devaney
Kendall Jenner fékk greidda 250 þúsund Bandaríkjadali, eða um þrjátíu milljónir íslenskra króna, fyrir að birta eina færslu um hátíðina á Instagram-reikningi sínum. Jenner sést aðeins í nokkrar sekúndur í heimildarmyndinni, þar sem hún er sýnd í viðræðum við skipuleggjendur en ljóst er að færslan hafði gríðarleg áhrif. Tveimur dögum síðar var búið að selja 95 prósent miða sem í boði voru á hátíðina.

Þá sökuðu skipuleggjendur Fyre Festival Bahamaeyjamenn úr starfsliði hátíðarinnar um að hafa hótað sér líkamsmeiðingum. Ráðgjafinn Marc Weinstein og viðburðastjórinn Andy King héldu þessu báðir fram í myndinni og sögðu mikla reiði hafa gripið um sig meðal heimamanna þegar þeir áttuðu sig á því að þeir ættu ekki von á greiðslu fyrir vinnu sína við hátíðina. King lýsti því til að mynda að hann hefði neyðst til að fá lánuð föt annars manns til að villa á sér heimildir, fela sig fyrir aftan þvagskál og húkka sér svo far með bíl í leyni til þess að komast óséður af eyjunni. 

Munnmök í skiptum fyrir vatn

Téður King á svo heiðurinn að öðru sláandi atriði í myndinni sem hlotið hefur mikla dreifingu á samfélagsmiðlum. Þar segir King frá því að McFarland hafi grátbeðið sig um að veita tollstjóra eyjaklasans munnmök í stað þess að borga andvirði 21 milljónar íslenskra króna fyrir tollmeðferð á innfluttu vatni fyrir hátíðargesti. King sagðist hafa farið á fund tollstjórans, tilbúinn að „fórna sér fyrir málstaðinn“, þegar sá síðarnefndi sagðist myndu hreinlega leyfa þeim að leysa út vatnið og borga fyrir það síðar. Og King andaði léttar. Frásögnina má sjá í myndbandinu hér að neðan.

Þá er ljóst að skipuleggjendur Fyre Festival snuðuðu fjölmarga heimamenn sem störfuðu við hátíðina. Frásögn MaryAnn Rolle, eiganda veitingastaðar sem skipuleggjendur Fyre Festival áttu í viðskiptum við, vakti mikla samúð netverja. Fyrstu hátíðargestirnir voru sendir á veitingastað Rolle, án alls fyrirvara, og var hún fengin til að reiða fram mat og drykk við komuna. Hún fékk hins vegar aldrei greitt fyrir þjónustuna og þurfti að eyða öllu sparifé sínu, um 50 þúsund Bandaríkadölum eða um sex milljónum íslenskra króna, til að greiða starfsfólki sínu laun.

Nú hafa netverjar hins vegar tekið höndum saman, Rolle til aðstoðar. Þegar þetta er ritað hafa safnast yfir 160 þúsund dalir, eða um 19 milljónir króna, í GoFundMe-síðu sem Rolle deildi sjálf eftir útgáfu myndarinnar. Þá hefur rapparinn Ja Rule, einn skipuleggjenda Fyre Festival, beðið Rolle afsökunar.

Tengslin við Pablo Escobar

Áhættusækni McFarland, höfuðpaurs Fyre Festival, virðist jafnframt engin takmörk sett. Stuttu eftir að honum var sleppt úr fangelsi gegn tryggingu vegna ákæru í tengslum við Fyre Festival hleypti hann annarri svikamyllu af stokkunum, fyrirtækinu NYC VIP Access. Fyrirtækið herjaði á gesti Fyre Festival í gegnum tölvupóst og bauð þeim miða á ýmsa stórviðburði. Þar var þó einn hængur á – miðarnir voru, og höfðu aldrei verið, fáanlegir. Talið er að McFarland hafi grætt um 100 þúsund Bandaríkjadali á svindlinu.

McFarland sagðist einnig hafa keypt eyjuna Norman‘s Cay, þar sem Fyre Festival átti upphaflega að fara fram. Hin meintu kaup notaði McFarland m.a. til að fá fjárfesta til að dæla fé í hátíðina en að síðustu kom í ljós að kaupin höfðu aldrei gengið í gegn. Þegar hinn raunverulegi eigandi eyjunnar frétti svo af því að tengsl hennar við eiturlyfjabaróninn Pablo Escobar væru notuð í auglýsingaherferð fyrir hátíðina dró hann eyjuna aftur til sín. Þar með þurftu skipuleggjendur að finna nýjan stað fyrir hátíðina, aðeins nokkrum mánuðum áður en átti að halda hana.

Sjá einnig: Skipuleggjendur Fyre Festival: „Við héldum að við værum tilbúnir en svo komu allir“

Þá mátti heyra lygilegar lýsingar hátíðargesta á ástandinu á Fyre Festival en eins og áður hefur komið fram var aðbúnaður hinn skelfilegasti. Þar bar líklega hæst frásögn ungs manns sem viðurkenndi að hafa, ásamt vinum sínum, lagt nærliggjandi tjöld í rúst svo að aðrir gestir myndu ekki búa sér næturstað í þeim. „Ég byrjaði bara að stinga göt og velta dýnum og félagi minn pissaði á nokkur rúm,“ sagði maðurinn í heimildarmyndinni.

Ja Rule segist aldrei hafa ætlað að plata neinn.Vísir/Getty

Ja Rule segist svikinn og svekktur

Rapparinn Ja Rule, viðskiptafélagi McFarland og einn aðalskipuleggjenda Fyre Festival, hefur gagnrýnt framleiðendur beggja heimildarmynda. Hann lýsti yfir vanþóknun sinni á því að Netflix og Hulu hafi greitt fólki sem var viðriðið hátíðina fyrir að koma fram í myndunum, þ.e. McFarland sjálfum og framleiðslufyrirtækinu FuckJerry sem fór með markaðsmál Fyre Festival.

Ja Rule, sem er áberandi í báðum heimildarmyndum, hélt því jafnframt fram á Twitter í gær að sjálfur myndi hann aldrei svindla á nokkrum manni.

„Ég var líka leikinn grátt, svikinn, blekktur, gabbaður, afvegaleiddur!!“ sagði Ja Rule í einni af færslum sínum.


Tengdar fréttir

Skipuleggjendur Fyre Festival krafðir um 100 milljónir Bandaríkjadala

Stjörnulögfræðingurinn Mark Geragos, sem starfaði áður fyrir söngvarann Michael Jackson, hefur stefnt skipuleggjendum hinnar umdeildu tónlistarhátíðar Fyre festival, Ja Rule og Billy McFarland. Hann krefur tvíeykið um 100 milljónir Bandaríkjadala í skaðabætur fyrir hönd skjólstæðings síns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×