Innlent

Uggandi vegna yfirvofandi ákvörðunar Reykhólahrepps

Kristján Már Unnarsson skrifar
Brú þvert yfir mynni Þorskafjarðar, eins og hún er sýnd í skýrslu Vegagerðarinnar frá því í haust.
Brú þvert yfir mynni Þorskafjarðar, eins og hún er sýnd í skýrslu Vegagerðarinnar frá því í haust. Grafík/Vegagerðin.
Ólga ríkir á Vestfjörðum vegna yfirvofandi ákvörðunar Reykhólahrepps um að velja stórbrú yfir Þorskafjörð í stað Teigsskógar sem veglínu Vestfjarðavegar. Ráðamenn annarra sveitarfélaga á sunnanverðum Vestfjörðum óttast að slík niðurstaða þýði minnst fjögurra ára töf. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2.

Ekið niður Ódrjúgsháls í Gufudalssveit. Vegagerðin vill í staðinn að Vestfjarðavegur liggi um Teigsskóg.Vísir/Egill Aðalsteinsson
Þolinmæði Vestfirðinga að þurfa að búa áfram við þjóðveg eins og þann um Ódrjúgsháls er löngu brostin og svo uggandi eru ráðamenn Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps um þróun málsins að þeir báðu um sérstakan fund með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, sem fram fór í dag. 

„Okkur er fúlasta alvara. Það er bara þannig. Við getum ekki látið bjóða okkur þetta lengur. Þetta er bara skýrt. Okkur vantar veg og við þurfum veg strax,“ segir Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar.

Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, og formaður samgöngunefndar Fjórðungssambands Vestfirðinga.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Hreppsnefnd Reykhólahrepps stefnir að því á fundi þann 16. janúar að velja á milli ÞH-leiðar um Teigsskóg og R-leiðar með stórbrú yfir mynni Þorskafjarðar og bendir flest til þess að Reykhólamenn velji R-leiðina.

„Mér finnst það líklegra en það liggur alls ekki fyrir og sveitarstjórn á eftir að taka endanlega afstöðu,“ segir Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps. 

Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Fulltrúar Reykhólahrepps mættu fyrir þingnefndina til að færa rök fyrir því hversvegna hreppsnefndin stefnir að því velja R-leið fram yfir Teigsskógarleið, sem fyrri hreppsnefndir höfðu áður samþykkt. 

„Við erum bara miður okkar. Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Við vitum það bara af reynslu að við erum að tala um lágmark fjögur ár í skipulagsferli, umhverfismat, kæruferli, eignarnám,“ segir Bryndís Sigurðardóttir, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps.

Bryndís Sigurðardóttir, sveitarstjóri Tálknafjarðar.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
„Þá er ljóst að tímafaktorinn er kominn algerlega upp í loft,“ segir Iða Marsibil. 

„Ég held að það sé rangt, eftir að hafa skoðað málin. Ég held að það sé hægt að ljúka R-leiðinni á ca þremur árum, hugsanlega fjórum árum. Sama gildir um ÞH-leiðina. Ég held það taki álíka tíma,“ segir Tryggvi.

Frá fundi umhverfis- og samgöngunefndar í dag. Þrír fulltrúar Reykhólahrepps til hægri.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Reykhólamenn eru sakaðir um að taka eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni annarra Vestfirðinga með því að láta þjóðveginn fara um Reykhóla. 

„Þarna var einungis litið til hagsmuna þeirra sem búa á Reykhólum eða þar í sveitinni. Og hvenær eru minni hagsmunir meiri?,“ spyr Iða Marsibil.

Frá Reykhólum. Vestfjarðavegur færi um hlaðið verði R-leið valin með brú yfir mynni Þorskafjarðar.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
„Ég veit ekki hvort menn séu að tala um það þegar vegalengd skólabarna í Gufudal styttist um tólf kílómetra, eða tíu þúsund kílómetra á ári vegna skólaaksturs. Það getur vel verið að það séu einhverjir sérhagsmunir. En ég lít á það sem almannahagsmuni,“ svarar Tryggvi.

Sendinefnd Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps að loknum fundi með þingnefndinni í dag.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
„Ef R-leiðin verður ofaná, og tímafaktorinn er þar af leiðandi orðinn óljós, þá verðum við eiginlega að fara fram á það að sá vegur, sem nú þegar liggur þar í gegn, verði gerður sómasamlega,“ segir forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Fjárveitingar miða við leiðarval um Teigsskóg

Fjárveitingar í samgönguáætlun til Vestfjarðavegar miða við leið um Teigsskóg, sem er fullfjármögnuð, og að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Ákvörðun um aðra leið er sögð þýða margra ára töf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×