Erlent

Fimm börn létust á leiðinni í Disneyland

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Mynd/Slökkviliðið í Alachua-sýslu.
Sjö létust í umferðarslysi í Flórída í Bandaríkjunum á fimmtudaginn er lítill farþegaflutningabíll og vörubíll rákust saman. Fimm börn eru á meðal þeirra sem létust en þau voru á leið í skemmtigarðinn Disneyland.

Börnin fimm voru á ferð ásamt fjórum öðrum börnum og þremur fullorðnum á vegum kirkju í Louisiana-ríki Bandaríkjanna. Förinni var sem fyrr heitið í skemmtigarðinn Disneyland. Ævintýraferðin breyttist hins vegar í martröð þegar flutningabíll ók yfir á vitlausan vegarhelming eftir smávægilegan árekstur.

Tveir voru um borð í flutningabílnum og létust þeir í árekstrinum. Mikil sorg ríkir í Lousiana-ríki vegna slyssins, ekki síst innan kirkjunnar sem börnin voru meðlimir í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×