Búist við hörðum átökum um þungunarrof á þinginu Jakob Bjarnar skrifar 13. maí 2019 13:08 Málið er afar umdeilt, ekki síst innan ríkisstjórnarinnar, sem sætir tíðindum því um er að ræða stjórnarfrumvarp sem Svandís Svavarsdóttir mælir fyrir. Trú og femínismi skipta máli en búist er við fjölmenni á þingpalla nú á eftir en víst er að vandlega verður fært til bókar hvernig þingmenn verja atkvæði sínu.
Veruleg spenna ríkir jafnt innan sem utan þings vegna komandi atkvæðagreiðslu um hið erfiða og umdeilda þungunarrofsmál, lagafrumvarp sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra leggur fram; framhald 3. umræðu og þá atkvæðagreiðslu. Málið er á dagskrá um klukkan 16 í dag, líklega nær 17:00 en það fer eftir því hvort önnur umræða sem boðað hefur verið til mun dragast. Ekki er gert ráð fyrir öðru en málið verði samþykkt. Um er að ræða stjórnarfrumvarp auk þess sem Viðreisn, Samfylking styðja og Píratar styðja málið. Halldóra Mogensen Pírati er formaður velferðarnefndar, sem hefur haft málið til umfjöllunar og hefur hún talað afgerandi með frumvarpinu. Hún telur fráleitt að trúaðir eigi að hafa nokkuð um málið að segja.Þrír ráðherrar á stjákli Fyrir liggur að Miðflokksmenn og fulltrúar Flokks fólksins munu verða á rauða takkanum. Það vakti hins vegar athygli að í atkvæðagreiðslu um málið í síðustu viku að Svandísi til mikillar hrellingar ákváðu þrír ráðherrar að sitja hjá, þegar greidd voru atkvæði um að vísa málinu áfram til 3. umræðu. Þetta voru þau Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra.Meðan tiltölulega hreinar línur eru meðal sjórnarandstöðunnar, þar eru flokkar ýmist með eða á móti og með afgerandi hætti, eru málið umdeilt innan stjórnarflokkanna. Lilja Dögg er úti í Kína og ekki er vitað hvort Sigríður Á. Andersen mætir til að greiða atkvæði á eftir en það gerði hún ekki í síðustu viku.visir/vilhelmÞannig er málið umdeilt meðal og innan stjórnarflokkanna, þó um stjórnarfrumvarp sé að ræða, meðan nokkuð skýrar línur eru þegar stjórnarandstaðan er annars vegar. Sem dæmi þá hefur Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins lýst því yfir að hann muni greiða atkvæði gegn því.Lilja og Hvítasunnusöfnuðurinn Spennandi verður að sjá hvernig þessi þrjú munu snúa sér í málinu í dag. Samkvæmt heimildum Vísis er Svandís einkum gröm vegna afstöðu, eða öllu heldur skorts á henni, hvað varðar Lilju Dögg en getgátur eru uppi um að afstaða hennar sé bundin vegna mikilla tengsla Framsóknarfélagsins í Reykjavík við Hvítasunnusöfnuðinn. Sem stendur á gömlum merg.Hvítasunnusöfnuðurinn er meðal þeirra trúfélaga sem skilað hafa inn umsögn um hið umdeilda frumvarp og lýst sig andsnúna því. Þetta gæti truflað afstöðu Framsóknarmanna en Hvítasunnusöfnuðurinn er burðarás í Framsóknarfélaginu í Reykjavík.visir/vilhelmSvo (heppilega) vill til að Lilja er reyndar stödd í Kína um þessar mundir og mun því ekki reyna á það hvernig hún ver atkvæði sínu. Hún verður fjarverandi. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía hefur í umsögn biðlað til löggjafans um að verja réttinn til lífsins. Og mótmælir frumvarpinu.Trúaðir gegn femínistum Femínistar hafa boðað komu sína á þingpallana síðdegis í dag, til að fagna því þegar frumvarpið verður að lögum. Og þar með áratugalöng barátta í höfn. En sem áður sagði; málið er ekki síst trúarlegs eðlis. Og má búast við því að trúaðir muni einnig mæta á pallana. Þessir hópar eru algerlega á öndverðum meiði.Femínistar hafa boðað komu sína á þingpalla á eftir. Einnig má búast við trúuðum á pallana til að fylgjast með framgangi málsins.Biskup yfir Íslandi, Agnes M. Sigurðardóttir, hefur fordæmt að sett hafi verið fram krafa um að um þetta mál sé notað nýtt hugtak, þungunarrof en ekki fóstureyðing eins og þetta hefur verið kallað. Hún telur of langt gengið, að miða við 22 vikur eða 5 og hálfan mánuð í meðgöngu; að fram að þeim tíma sé löglegt að eyða fóstri. Flest trúfélög láta sig málið varða eru almennt sammála um þetta.Hvað gerir hin kaþólska Þorgerður Katrín? Kaþólska kirkjan hefur mótmælt frumvarpinu en formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, er kaþólsk. Og víst er að í atkvæðagreiðslunni verður ekki síst horft til þess hvernig hún kýs. Eða hvort hún verður fjarverandi. Þorgerður hefur ekki tjáð sig um málið en flokkur hennar er því fylgjandi. Reyndar má búast við því að þeir sem heitastir eru í málinu muni fylgjast afar grannt með hvernig þingmenn verja atkvæði sínu og hvort þeir mæti yfir höfuð til að kjósa – það er þannig vaxið. Þannig liggur fyrir að málið mun reyna mjög á og má búast við því að þeir sem eru á móti málinu muni láta til sín taka í umræðu um atkvæðagreiðsluna. Og svo í atkvæðaskýringum um atkvæðagreiðsluna og þær breytingartillögur sem hafa komið fram. En, ekki er boðið uppá ræðuhöld um málið á þessu stigi, þannig að hver og einn þingmaður hefur takmarkaðan tíma til að gera ítarlega grein fyrir afstöðu sinni.Vísir mun streyma beint frá þingi þá er málið verður þar til afgreiðslu en samkvæmt áætlun hefst afgreiðsla og umræður um klukkan 16:00.
Alþingi Fréttaskýringar Þungunarrof Tengdar fréttir Sendi fjölmiðlum myndir af íslenskri stúlku fæddri á 23. viku meðgöngu Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, heyir harða baráttu á Alþingi gegn þungunarrofsfrumvarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. 9. maí 2019 07:57 Greiða atkvæði um þungunarrof Atkvæði verða greidd á Alþingi í dag um frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þungunarrof. 13. maí 2019 06:00 Sjálfsagt að karlmenn tækju ríkan þátt Það getur haft margvísleg áhrif á líkamann að nota getnaðarvarnir. Flestar innihalda þær tvö hormón, estrógen og gestagen. Áhrif og einkenni sem konur geta fundið fyrir við notkun hormónaríkra getnaðarvarna eru margar. 9. maí 2019 09:00 Hvetur til kynlífsverkfalls til að mótmæla þungunarrofslöggjöf Leikkonan og #metoo aðgerðasinninn Alyssa Milano hvetur konur til að taka þátt í svokölluðu kynlífsverkfalli til að mótmæla nýjum þungungarrofslögum í sem voru samþykkt í Georgíu fylki í Bandaríkjunum í síðustu viku. 12. maí 2019 16:21 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Sjá meira
Sendi fjölmiðlum myndir af íslenskri stúlku fæddri á 23. viku meðgöngu Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, heyir harða baráttu á Alþingi gegn þungunarrofsfrumvarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. 9. maí 2019 07:57
Greiða atkvæði um þungunarrof Atkvæði verða greidd á Alþingi í dag um frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þungunarrof. 13. maí 2019 06:00
Sjálfsagt að karlmenn tækju ríkan þátt Það getur haft margvísleg áhrif á líkamann að nota getnaðarvarnir. Flestar innihalda þær tvö hormón, estrógen og gestagen. Áhrif og einkenni sem konur geta fundið fyrir við notkun hormónaríkra getnaðarvarna eru margar. 9. maí 2019 09:00
Hvetur til kynlífsverkfalls til að mótmæla þungunarrofslöggjöf Leikkonan og #metoo aðgerðasinninn Alyssa Milano hvetur konur til að taka þátt í svokölluðu kynlífsverkfalli til að mótmæla nýjum þungungarrofslögum í sem voru samþykkt í Georgíu fylki í Bandaríkjunum í síðustu viku. 12. maí 2019 16:21