Fluttur strax til afplánunar eftir afskipti lögreglu Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. nóvember 2018 07:24 Þá stöðvaði lögregla þrjá ökumenn í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna. Vísir/Vilhelm
Lögregla handtók í gærkvöldi karlmann í miðborg Reykjavíkur en handtökuskipun hafði verið gefin út á hendur honum. Lögregla hafði haft afskipti af manninum og konu sem hann var með vegna vörslu fíkniefna. Maðurinn var fluttur rakleiðis til afplánunar í fangelsi, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Skömmu fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um umferðaróhapp við gatnamót á Höfðabakkabrú í Árbæ. Tjónvaldur er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og að hafa ekið mót rauðu ljósi inn á gatnamótin. Draga þurfti bílana af vettvangi. Ökumenn tveggja bifreiða sem áttu hlut að máli voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en ekki er vitað um meiðsl þeirra. Tjónvaldur var síðar vistaður í fangageymslu. Þá stöðvaði lögregla ökumann bifreiðar um klukkan hálf eitt í Kópavogi eftir að hann ók mót einstefnu. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Bifreiðin reyndist vera með röng skráningarnúmer og voru númerin klippt. Lögregla stöðvaði einnig ökumann bifreiðar í Hafnarfirði seint á öðrum tímanum í nótt. Hann er grunaður um ölvun við akstur og brot á reynslulausn.
Lögreglumál Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Fleiri fréttir Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Sjá meira