„Þið eruð að fara með mig eins og fokking blökkumann!“ Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 18. ágúst 2018 10:11 Epstein var allt annað en sáttur við framgöngu lögreglunnar. Twitter/Blédakiss
Jeffrey Epstein, 59 ára læknir frá Flórída, segist hafa orðið fyrir lögregluofbeldi þegar hann var handtekinn á Orlando flugvelli í gær og myndband af upptökunni fer eins og eldur í sinu um netheima. Það sem helst vekur athygli er að Epstein hrópar upp yfir sig að hann óttist að vera barinn af lögreglunni og segist síðan vera að fá sömu meðferð og blökkumaður eftir að þrír lögreglumenn snúa hann niður. Í samtali við bandaríska fjölmiðla segist Epstein hafa verið að reyna að koma því til skila að ef hann fengi slíka meðferð sem hvítur karlmaður um sextugt mætti búast við því að sömu lögreglumenn myndu beita blökkumenn ennþá meira ofbeldi. Atvikið átti sér stað klukkan sex um morguninn eftir að starfsmenn flugvallarins tilkynntu lögreglu að óður maður gengi laus í flugstöðinni og öskraði hástöfum. Þegar lögreglu bar að garði virtist Epstein róast en þegar honum var sagt að hann fengi ekki að stíga um borð í flugvél eftir ólætin virtist hann sturlast að sögn viðstaddra. Hann var snúinn niður, handjárnaður og úðaður með piparúða áður en hann var færður í fangageymslu.“You're treating me like a f*cking black persooooooooon”! pic.twitter.com/Uyha5n75jz— Blédakiss (@ChefRoble) August 17, 2018 Epstein var ekki mjög brattur eftir piparúðann og átökin við lögreglu.Orlando Police DepartmentEpstein reyndist vera með lítinn poka af kannabis í fórum sínum. Hann mun hafa sagt lögreglu að allt hafi þetta verið með ráðum gert til að sýna fram á að lögregluofbeldi þrifist víða í Bandaríkjunum.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira