Úlfsdráp veldur úlfúð Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. maí 2018 08:57 Hér sést úlfurinn og bíllinn sem um ræðir. Skjáskot
Villtur úlfur var drepinn í vesturhluta Jótlands á dögunum. Úlfar eru sjaldgæf sjón í Danmörku og óttast dýraverndunarsinnar að drápið kunni að verða til þess að nýr úlfastofn nái ekki að skjóta rótum í landinu. Dráp úlfsins, sem er meðal þeirra fáu sem sést hafa í Danmörku síðastliðin 200 ár, náðist á myndbandsupptöku. Upptakan hefur vakið töluverða reiði í Danmörku, sem og meðal dýraverndunarsinna um allan heim. Myndbandið má sjá hér að neðan. Í því sést hvernig úlfynja er skotin til bana af byssumanni sem virðist sitja í kyrrstæðum bíl. Ekki er að sjá á myndefninu að dýrið hafi sýnt ógnandi tilburði.Í samtali við Guardian segir Guillaume Chapro, aðstoðarprófessor við sænska landbúnaðarháskólann, að drápið sé með öllu ófyrirgefanlegt. Dýrið hafi ekki ögrað neinum heldur virðist atferli þess einkennast af varkárni og forvitni. Danska lögreglan hefur ákært 66 ára heimamann vegna málsins en reynt verður að sækja hann til saka fyrir brot á veiðireglum. Hann neitar að hafa drepið úlfinn en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Bíll hans og skotvopn hafa verið gerð upptök meðan málið er til rannsóknar. Villtir úlfar höfðu ekki sést af ráði í Danmörku frá árinu 1813 þangað til að fregnir fóru að berast af úlfahjörð í vesturhluta Jótlands í fyrra. Hjörðin er mjög lítil og segja sérfræðingar að eitt dráp, eins og það sem sjá má hér að neðan, geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir stofninn. Talið er að úlfarnir hafi drepið nokkrar kindur í vetur en dönsk stjórnvöld hafa komið á fót styrktarsjóði fyrir bændur til að standa straum af kostnaði sem af því hlýst. Þá geta danskir bændur jafnframt fengið styrk til að reisa úlfheldar girðingar.Rétt er að ítreka að myndbandið kann að vekja óhug.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira