Þriðja leikinn í röð var Einar Sverrisson, rétthent skytta í liði Selfoss, markahæstur í liði heimamanna en hann skoraði ellefu mörk í leiknum. Hann er búinn að skora ellefu mörk í öllum þremur leikjunum á móti FH eða 33 mörk í heildina sem er þriðjungur marka Selfyssinga sem eru búnir að skora 100 mörk í einvíginu.
Einar er markahæstur allra í einvíginu og hefur einfaldlega verið langbestur allra í þessari rimmu. Hann er er búinn að skora ellefu mörk að meðaltali í leik með 87 prósent skotnýtingu sem er algjörlega fáránlegt. Þessi hávaxna skytta skorar nánast úr hverju einasta skoti.

Af bekknum í byrjunarliðið
Til viðbótar er hann að gefa tæpar tvær stoðsendingar í leik, taka eitt frákast, verja eitt skot í hávörninni og er með fjórar löglegar stöðvanir. Þetta má sjá í samantekt HB Statz fyrir undanúrslitin en einnig má sjá heildartölfræði fyrir úrslitakeppnina.Það sem er enn merkilegra við þessa svakalegu frammistöðu Einars er að hann er ekki einu sinni byrjunarliðsmaður. Einar hefur verið kallaður besti áttundi maður deildarinnar en hann byrjar vanalega á bekknum fyrir Elvar Örn Jónsson sem var valinn besta vinstri skytta Olís-deildarinnar í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport HD.
Einar hefur nú hrifsað til sín sæti í byrjunarliðinu en það er líka vegna þess að hann er að bæta leik sinn gríðarlega frá deildarkeppninni inn í úrslitakeppnina. Hægt er að sjá muninn á frammistöðu leikmanna í deildarkeppninni og úrslitakeppninni með því að smella hér og fara í „Tölfræði leikmanna +/-“.
Einar er að skora 4,3 mörkum meira að meðaltali í leik í úrslitakeppninni en í deildarkeppninni og með 23 prósent betri skotnýtingu. Hann er að bæta við sögu í öllum tölfræðiþáttum og því kemur ekkert á óvart að hann byrjaði síðasta leik á móti FH.
Statz línan hjá Einari Sverrissyni í þessum 3 leikjum á móti FH:
— HBStatz (@HBSstatz) May 1, 2018
11.0 mörk (89%) - 1.7 stoðsendingar - 1.0 tapaðir boltar - 4.0 löglegar stöðvaðir - 0.7 varðir boltar
Talandi um að stiga upp #handbolti #olisdeildin @Seinnibylgjan @selfosshandb